Möppun Flóra og Launagátt

Ferlið: Laun - Úttak - Flóra - Vörpun launaliða

vörpun.gif

 

 

Skilgreina þarf möppun fyrir skil upplýsinga yfir til Flóru - Launagátt. og til baka við breytingar í Launagátt.

Það er annarsvegar verið að vinna með Greiningarflokka og hinsvegar Launagátt, það er skilyrði að fylla inn í bæði svæðin.

Greiningarflokkar: þá er verið að skilgreina hvað skilar sér yfir í Flóru sem launaupplýsingar, veikindaupplýsingar og orlofs/réttindaupplýsingar.

Launagátt: Þá er verið að skilgreina hvaða launaliðir skila sér til birtingar í Flóru - Launagátt og hinsvegar þegar verið er að senda breytingar til baka í H3.

Þegar búið er að fylla inn í vörpunartöfluna þá þarf að smella á Uppfæra gögn undir Aðgerðir, gæta þess að þegar verið er að bæta við eða taka út skráningar í vörpunartöflu að smella þá á Uppfæra gögn.

Þegar smellt er á Uppfæra gögn þá færast gögn yfir um Starfsaldur, Orlof, laun og veikindi útfrá skilgreiningu í möppun.

Athugið að upplýsingar um laun, orlof, veikindi og starfsaldur uppfærist ekki fyrr en eftir að útborgun er lokað, þannig ef starfsmaður er að skoða stöðuna 11.7.2023 þá er þetta staðan miða við þegar júní laun voru uppfærð eða staðan 30.6.2023.