Uppsetning í H3
Ef þitt fyrirtæki vill nýta sér Flóru fyrir aðgang starfsfólks að mannauðsupplýsingum bendum við ykkur á að hafa samband með tölvupósti á netfangið h3@advania.is.
Þegar Flóra er innleidd, þurfa ákveðnar uppsetningar í H3 að vera til staðar áður en hægt er að láta gögn flæða yfir í Flóru.
Þær upplýsingar sem þurfa að vera til staðar í H3 eru:
Á launamannaspjaldinu þarf að vera skráð netfang í reitnum Vinnunetfang og símanúmer í reitnum Farsími.
Á starfsmannaspjaldinu þarf að vera upplýsingar skráðar í:
Fyrst ráðinn
Starfsheiti
Deild
Staða starfs: Í starfi eða Í leyfi
Staða: Virkur
Hægt er að skrá orlofsrétt starfsmanns undir Laun – Starfsmenn – Grunnlaun inn í H3.
Skilgreina þarf forsendur í Launatöflur – Orlofsflokkahækkanir, fjöldi orlofsdaga þá sækir kerfið orlofsprósentu í DV og ÖN, hægt er þó að yfirskrifa upplýsingar í þessum reitum.
Formúlan sem er notuð er skv. sa.is - innvinnsla orlofslauna
Vörpun launaliða
Ef styrkir og launagátt eru nýtt í Flóru, þá þarf að varpa launaliðum yfir í Flóru. Sjá leiðbeiningar hér: Varpa launaliðum yfir í Flóru
Skipurit
Yfirfara þarf deildir og svið og passa upp á að tengingar séu réttar, t.d. ef deild er tengd við svið eða yfirdeild. Einnig þarf að fara yfir skráningu á yfirmönnum á deildum og sviðum og passa að þeir séu virkir og hakað sé í dálkinn Aðalstjórnandi.
Í framhaldi þarf að upplýsa ráðgjafa um hvaða skipuritseiningar (svið og deildir) eiga að flæða yfir í Flóru. Svo aðeins réttar skipuritseiningar flæði yfir.
Sjá nánari leiðbeiningar fyrir skipurit hér: 1.1 Stofn - Svið/Deildir/Verk/Verkþættir - Mannauðslausnir - Confluence
Gagnaflutningur til Flóru
Í upphafi aðstoðar ráðgjafa við gagnaflutning yfir í Flóru. Svo þegar reynsla er komin á kerfið og nýjar deildir stofnast og aðrar deildir gerðar óvirkar getur notandi í H3 átt við stillingu ganga.
Notandi þarf annaðhvort að hafa aðgang að:
Launum og hefur hlutverkið “Laun - Flóra” (ný eining kem kemur við útgáfu 9248 (apríl 2026). Í þessu hlutverki eru einingar:
flora0200 - Laun-Flóra menu
flora0010 - Manages Flóra CodeMap table
Eða
Kerfisumsjón og hefur hlutverkið FLORA_KERF sem þarf að innihalda eininguna flora0010 - Manages Flóra CodeMap table átt við samstillingu gagna.
Samstilling gagna - skipurit í Flóru
Notandi sem hefur annan hvorn þeirra aðganga sem nefndir eru hér að ofan.
Laun - Vinnslur - Flóra - Gagnaflutningar valmynd - Endurtekning - Endurtaka gagnaflutninga.
eða
Kerfisumsjón - Flóra - Gagnaflutningar valmynd - Endurtekning - Endurtaka gagnaflutninga.
Þessi aðgerð virkar einungis ef deild er óvirk.
Virkni: Aðgerðin bakkar/lagar skipurit fyrir óvirkar deildir og breytingar á virkum deildum ef það eru t.d. tilfærslur á milli deilda, en bakkar/lagar EKKI virka deild úr sýn í skipuriti.
Dæmi um tilgang virkninnar:
Þegar breytingar eru gerðar á starfi, deildarskipulagi o.s.frv. þá flæða þær breytingar til Flóru. En með því að keyra t.d. “department” þá er verið að taka til í skipuritinu sjálfu. Eða ef það er keyrt “EmployeeJob” þá er verið að taka til í öllum störfum.