Varpa launaliðum yfir í Flóru
Ferlið: Laun - Úttak - Flóra - Vörpun launaliða
Skilgreina þarf möppun fyrir skil upplýsinga yfir til Flóru og frá Flóru yfir í H3.
Það er annarsvegar verið að vinna með Greiningarflokka og hinsvegar vörpun, það er skilyrði að fylla inn í bæði svæðin.
Greiningarflokkar
Þá er verið að skilgreina hvað skilar sér yfir í Flóru sem launaupplýsingar, veikindaupplýsingar, styrkir og orlofs/réttindaupplýsingar.
Vörpun
Þá er verið að skilgreina hvaða launaliðir skila sér til birtingar í Flóru og hinsvegar þegar verið er að senda breytingar til baka í H3. Það sem er boðið upp á í vörpun fer eftir hvað er valið í greiningarflokki.
Greiningarflokkur “Greiningarflokkar - GRA”, biður upp á varpanir fyrir:
Símastyrk
Samgöngustyrk
Heilsustyrk
Mataráskrift (kemur með júní 2026 útgáfu (9254)
Greiningarflokkur “Laun - SAL”, biður upp á varpanir fyrir:
Grunnlaun
Fasta yfirvinnu (einingarfjöldi x einingarverð)
Fasta yfirvinna (Upphæð)
Bónusgreiðslur
Bílastyrkur
Bílagreiðslur
Akstursamning
Bílahlunnindi
Sérgreiðslur
Greiningarflokkur “Veikindi - SKL” biður upp á varpanir fyrir:
Veikindi (R.6xx)
Veikindi barna (R.6xx)
Greiningarflokkur “Orlof/Réttindi - VAC” biður upp á varpanir:
Vetrarfríi (R.6xx)
Bakvaktarfríi (R.6xx)
Hvíldarfríi (R.6xx)
Einungis er hægt að skrá hverja vörpun einu sinni.
Til dæmis ekki er hægt að skrá SAL001 tvisvar á sitthvort launaliðanúmerið.
Launaliðir
Þá er verið að skilgreina hvaða launaliðir er verið að nota.
Launaliður sem skráður er í vörpun má ekki vera skráningu á sér undir Hlutföll né Krónur á launatöflu. Ef launaliðurinn sem er notaður er til og með skráningu undir Hlutföll eða Krónur þá stoppar breyting á villu.
Ef fyrirtæki/stofun er með starfsmenn sem eru annaðhvort á mánaðarlaunum eða á tímakaupi. Þá er mikilvægt að skrá launalið veikinda sem R launaliði (680 fyrir veikindi og 690 fyrir veikindi barna). Þá birtast þær skráningar fyrir launaliði 101680, 101690, 105680 og 105690 í Flóru.
Þegar búið er að fylla inn í vörpunartöfluna þá þarf að smella á Uppfæra gögn undir Aðgerðir, gæta þess að þegar verið er að bæta við eða taka út skráningar í vörpunartöflu að smella þá á Uppfæra gögn.
Þegar smellt er á Uppfæra gögn þá færast gögn yfir um Starfsaldur, Orlof, laun og veikindi útfrá skilgreiningu í möppun.
Athugið að upplýsingar um laun, orlof, veikindi og starfsaldur uppfærist ekki fyrr en eftir að útborgun er lokað, þannig ef starfsmaður er að skoða stöðuna 11.7.2023 þá er þetta staðan miða við þegar júní laun voru uppfærð eða staðan 30.6.2023.