Reiknireglur eru notaðar til að reikna út úr tímastimplunum starfsmanna og skipta viðverutímanum niður í rétta taxta s.s. dagvinnu, yfirvinnu eða álag.
Reiknireglur geta einnig innihaldið aðrar upplýsingar svo sem:
Vinnuskyldu starfsmanns
Sjálfvirkra tímastimplun fyrir óunna vinnu á hátíðis- og helgidögum
Útreikningi og innlögn í tímabanka vegna hvíldartímabrota
Rúnnun á mætingu eða brottför
Meðhöndlun mismunandi ástæðna við tímastimplun
Önnur atriði eins og við á fyrir þann kjarasamning sem starfsmaður tilheyrir
Til að Bakvörður geti meðhöndlað tímastimplanir starfsmanns verður að vera búið að setja reiknireglu á starfsmanninn. Það er gert í starfsferli starfsmanns.
Reiknireglur valdar á starfsfólk
Við gerð og val á reiknireglum er mælst til þess að hafa reiknireglur sem almennastar þannig að þær verði ekki óþarflega margar og hægt að gera breytingar á reiknireglum fyrir stóran hóp starfsmanna í einu.
Almenna reglan er sú að tilheyri hópur starfsmanna sama kjarasamningi er hægt að setja á hann sömu reiknireglu - jafnvel þótt starfshlutfall starfsmanna sé mismunandi.
Info |
---|
ATHUGIÐ: Þegar skipt er um reiknireglu starfsmanns mælt með því að búa til nýjan starfsferil til þess að útreikningur skv. fyrri reiknireglu haldist óbreyttur |
Child pages (Children Display) |
---|