Reiknireglur
Reiknireglur eru notaðar til að reikna út úr tímastimplunum starfsmanna og skipta viðverutímanum niður í rétta taxta s.s. dagvinnu, yfirvinnu eða álag.
Reiknireglur geta einnig innihaldið aðrar upplýsingar svo sem:
Vinnuskyldu starfsmanns
Sjálfvirkra tímastimplun fyrir óunna vinnu á hátíðis- og helgidögum
Útreikningi og innlögn í tímabanka vegna hvíldartímabrota
Rúnnun á mætingu eða brottför
Meðhöndlun mismunandi ástæðna við tímastimplun
Önnur atriði eins og við á fyrir þann kjarasamning sem starfsmaður tilheyrir
Til að Bakvörður geti meðhöndlað tímastimplanir starfsmanns verður að vera búið að setja reiknireglu á starfsmanninn. Það er gert í starfsferli starfsmanns.
Reiknireglur valdar á starfsfólk
Við gerð og val á reiknireglum er mælst til þess að hafa reiknireglur sem almennastar þannig að þær verði ekki óþarflega margar og hægt að gera breytingar á reiknireglum fyrir stóran hóp starfsmanna í einu.
Almenna reglan er sú að tilheyri hópur starfsmanna sama kjarasamningi er hægt að setja á hann sömu reiknireglu - jafnvel þótt starfshlutfall starfsmanna sé mismunandi.
ATHUGIÐ:
Þegar skipt er um reiknireglu starfsmanns mælt með því að búa til nýjan starfsferil til þess að útreikningur skv. fyrri reiknireglu haldist óbreyttur
Gott er að vera meðvitaður um hvernig endurreikningur er gerður á tímstimplunum starfsmanna