Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Til að auðvelda vinnu við PwC launagreiningu er  fyrirspurn sem sækir viðeigandi upplýsingar í launa-  og mannauðskerfið.  Upplýsingar um launagreininguna má finna á heimasíðu PwC.

 


Með því að nýta sér þennan möguleika verður vinnan við að skila gögnum mun minni og verulegur tímasparnaður mun nást strax á fyrsta ári.

Mikilvægt er að kynna sér vel leiðbeiningar sem fylgja með skjalinu sem starfsfólk PwC sendir þegar tilkynning um þátttöku hefur verið framkvæmd.


Image RemovedImage Added


Varpa launaliðum

Þar sem skipulag flokkunar launa hjá PwC getur verið ólíkt skipulaginu í H3 þarf að fylla út vörpunartöflu þar sem farið er yfir launaliði og þeir tengdir skipulagi PwC.  Einnig þarf að stilla af hvaða launaliðir eiga að vera á bak við vinnustundir í grunnlaunum og yfirvinnustundir. 

 


Eðlilegt er að sumir launaliðir séu flokkaðir þannig að þeir komi ekki með "0 Ekki með" t.d. 9400 orlof (á laun) dagv. og 9405 Orlof (á laun) önnur.  

Image RemovedImage Added

Skrá stöðluð menntastig

Fara þarf yfir menntastig og flokka menntastigin í fyrirfram skilgreind stöðluð menntastig.  Gert í H3 mannauður undir Stofn - Menntun - Menntastig eða í launakerfi undir Úttak/ PWC launagreining / Skrá stöðluð menntastig.   Athugið að ef ekki er haldið utan um menntun starfsmanna í H3 mannauð er ekki þörf á að fylla þetta út. 


Image Added

Image Removed

Framkvæma vinnsluna

Þegar búið er að varpa launaliðum og skrá stöðluð menntastig er hægt að Opna fyrirspurn.  Eftir að búið er að opna hana er mikilvægt að yfirfara gögnin vel.  Hægt er að breyta gögnum og keyra út eins oft og þurfa þykir.

 


Þessa fyrirspurn er svo hægt að færa yfir í Excel (hægrismella-opna lista í Excel).  Þar er listinn svo hreinsaður til og að lokum sendur til PwC.  Athugið að alltaf þarf að tryggja vel öryggi gagna sem send eru með tölvupósti.

 


Mjög mikilvægt er að eyða út öllum dálkum þar sem (Eyða dálki) kemur fyrir í fyrirsögninni, þetta er gert til að gögnin verði ekki eins persónugreinanleg í skilum til PwC.  Gott getur verið að eiga skjalið hjá ykkur með öllum upplýsingum í til að geta unnið á móti starfsfólki PwC ef einhver vandarmál koma upp.