Bókun áætlunar getur verið með ýmsum hætti. Við mælum með að skráin sé sett upp í kerfinu og lesin inn í bókhald. Með því komum við í veg fyrir innsláttarvillur.
Niðurbrotið getur verið eins og hverjum hentar, t.d. ein upphæð niður á deildir, starfsheiti og mánuði.
1. Setjum skrána upp í því niðurbroti sem á að vera. Gert í Bókhaldsuppsetning - Bókhaldskerfi
Ath! Ef áætlun bókast í sama kerfi og launin er gott að hafa bókhaldskerfi launa til hliðsjónar.
2. Setjum bókunarlyklana á uppsetninguna og vísum í deildir/starfsheiti e.t.v. - Gert í Bókhaldsuppsetning.
DDDD - sóttir 4 stafir í svæðið bókhaldslykill í deild.
ef sækja á í starfsheiti er það CCCC, sjá lista yfir bókstafi neðst í þessari hjálparsíðu hér: Bókhaldsuppsetning
3. Setjum uppsetninguna á áætlunardálka