...
Atvikanúmer | Ferli | Lýsing á virkni | Kerfishluti | |||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Uppfærslukerfi H3 | Unnið hefur verið að nýju uppfærslukerfi í H3+. Eftir að uppfærslan hefur verið tekin inn er uppfærslukerfið einungis aðgengilegt í H3+ og gamla kerfið uppfærslukerfið verður því ekki lengur virkt í Windows client. Athugið: það þarf að taka inn útgáfuna í gamla uppfærslukerfinu og þegar útgáfan er komin inn er farið yfir í nýja kerfið.
Undir Kerfisumsjón er nú sýnilegur hnappurinn Uppfærslur og undir honum má einnig nálgast allar uppfærslulýsingar. Þegar smellt er á hnappinn birtast þær uppfærslur sem á eftir að taka inn. Þá er einfaldlega hakað við viðkomandi útgáfu og smellt á Uppfæra. Hægt er að taka inn fleiri en eina uppfærslu í einu en þær þarf að taka inn í tímaröð, þ.e. elstu útgáfurnar fyrst. Uppfærslulýsingar má sjá þegar smellt er á örina undir Uppfærslur: Hægt er að fylgjast með framvindu uppfærslunnar í Athugasemdir og í lokin birtist staðfesting á því að uppfærslunni sé lokið. Athugið að til að fá inn nýjungar og lagfæringar þarf að endurræsa kerfið. Nýjir notendur: Til að byrja að nota nýja uppfærslukerfið þarf að setja hlutverkið Uppfærslukerfi - H3+ á notandann eða setja eininguna TMFW-Patch á hlutverk. Við ítrekum að útgáfu 8567 þarf að taka inn í gamla uppfærslukerfinu og svo er farið yfir í nýja kerfið. Ef upp koma vandkvæði þá vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is |
|
...