Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Séreignarsjóðir koma uppsettir með H3 og eru allir sjóðirnir skráðir óvirkir. Það þarf því að byrja á að virkja alla þá sjóði séreignarsjóði sem eiga að vera í notkun og jafnframt að yfirfara þær upplýsingar sem eru skráðar á sjóðinn.  

Þó sjóðirnir komi uppsettir með helstu upplýsingum er það alltaf á ábyrgð launagreiðanda að yfirfara þessar upplýsingar og passa að þær séu réttar. 

Skilgreina þarf svo reiknireglur lífeyrissjóðs með því að fara í Stofn – Lífeyrissjóðir og smella á þann sjóð sem á að yfirfara. Áður en byrjað er á því þarf að velja á milli 2 aðferða. 

 

 Í stofnupplýsingum fyrir lífeyrissjóði er gluggi sem heitir Tengdir starfsmenn. Ef það eru engir tengdir starfsmenn og búið er að skrá alla starfsmenn inn í kerfið þarf ekki að virkja þann sjóð og hægt er að smella á næsta sjóð. 

Yfirfara sérstaklega vel eftirtalda reiti í stofnupplýsingum séreignarsjóðs, einnig er gott að yfirfara bankaupplýsingar sjóðanna.  Farið í Stofn - Lífeyrissjóðir og tvísmellt á viðkomandi sjóð.

Staða 

Breyta stöðu í Virkur í þeim sjóðum sem á að nota 

Greiðslumáti 

Val um Textaskrá SI080 eða Rafræn bankasending ef sent er beint í banka 

Til greiðslu 

Sjálfgefið er Síðasti dagur mán. Hægt að breyta dagsetningu ef önnur er notuð. 

...

Skilgreina þarf svo reiknireglur lífeyrissjóðs eftir því hvort Aðferð 1 eða Aðferð 2 var valin, sjá leiðbeiningar hér fyrir neðan fyrir báðar aðferðirnar.

AÐFERÐ 1 – TVEIR SJÓÐIR VIRKJAÐIR FYRIR HVERN SÉREIGNARSJÓР

...

Fara svo yfir stofnupplýsingar og passa að virkja sjóðinn.

Þegar búið er að virkja og yfirfara alla séreignarsjóði sem eru í notkun þarf að skrá eða lesa inn lífeyrissjóðsupplýsingar fyrir alla starfsmenn sem eru með séreignarsjóð.

Með þessari aðferð er almennt verið að skilgreina upplýsingar í starfsmannaspjaldi á þennan hátt, farið inn í Starfsmenn, starfsmaður valinn og smellt á flipa fyrir Lífsj. og Stéttarf.

 

Dæmi:

Starfsmaður greiðir 4% í séreignarsjóð og fær 2% mótframlag frá atvinnurekanda. Þar sem bæði sjóðurinn fyrir framlag launþega og sjóðurinn fyrir mótframlag launagreiðanda eru skilgreindir með 2% framlag, þá þarf að setja upplýsingar fyrir starfsmann svona upp. Reglan er Samkvæmt lífeyrissjóði og þarf þá að setja 200 prósent til að það reiknist 4% framlag. Mótframlagið er skilgreint 2% í lífeyrissjóðnum og ef starfsmaður er með 2% mótframlag þá er það skilgreint sem 100%

...

AÐFERÐ 2 – EINN SJÓÐUR VIRKJAÐUR FYRIR HVERN SÉREIGNARSJÓÐ

...

Þegar þessi aðferð er notuð er ekki þörf fyrir að nota sjóðina sem eru með tölunni 2 fyrir framan lífeyrissjóðsnúmerið og því hægt að eyða öllum þeim sjóðum út. Í þessu dæmi er þá hægt að eyða sjóði nr. L2004 út því hann er ekki notaður fyrir mótframlagið.

Þegar búið er að virkja og yfirfara alla séreignarsjóði sem eru í notkun þarf að skrá eða lesa inn lífeyrissjóðsupplýsingar fyrir alla starfsmenn sem eru með séreignarsjóð.

Með þessari aðferð er almennt verið að skilgreina upplýsingar í starfsmannaspjaldi á þennan hátt, farið inn í Starfsmenn, starfsmaður valinn og smellt á flipa fyrir Lífsj. og Stéttarf.

Dæmi:

Starfsmaður greiðir 4% í séreignarsjóð og fær 2% mótframlag frá atvinnurekanda. Bæði eigið framlag og mótframlag er skilgreint á einn sjóð og báðir liðir með 100% stuðul. Uppsetning í starfsmanni er því skilgreind með raunverulegri prósentu sem hann á að greiða en hér þurfum við að passa vel að nota réttar reglur. Við notum Hlutfall iðgjalds fyrir eigið framlag og Hlutfall mótframlags fyrir framlag launagreiðanda.

...

Í aðferð 2 er ekki þörf fyrir sjóðina sem eru með 2 fyrir framan og er því hægt að fara og eyða þeim sjóðum út með því að smella Til að eyða sjóði út er smellt á viðkomandi sjóð og síðan á ruslatunnuna.

...