Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Áður en launamiðar eru prentaðir sendir, þarf að stemma launin af við bókhald og ganga úr skugga um að uppsetning launamiða sé rétt.  Við afstemmingu launa og bókhalds er þægilegast að nota fyrirtækjalista fyrir allt árið.


Til að stemma launamiðann af við launakerfið eru notaðir tveir listar.  Fyrirtækjalisti fyrir allt árið og samtalsblað launamiða.  Fyrirtækjalistinn er undir Úttak / Skýrslur / Fyrirtækjalisti,  Samtalsblað launamiða er í Úttak- Launamiðar - Prenta, .

Image Added

í "Birting launamiða" er haft "Samtölur eingöngu". 

Ef gögnin eru stór getur þessi aðgerð tekið nokkrar mínútur að keyra..










Mikilvægt er að skoða afstemmingu neðst á samtalsblaði, ef hún er 0 þá eru allir launaliðir tengdir. Það segir þó ekki til um hvort einhverjir launaliðir séu vitlaust tengdir en það verður hver að vita fyrir sig.

Ef samtalan er ekki 0, hafa verið stofnaðir nýjir nýir launaliðir á árinu sem ekki hafa verið tengdir á launamiðann. 

Athygli er vakin á því að fjárhæðir, sem færa má til frádráttar í kafla 2.6 á framtalinu, eru ekki forskráðar, fyrir utan iðgjald í lífeyrissjóði í reitum 162 og 160.

Ef um ræður launamiðareit 09 og/eða 149, koma þeir ekki fram í afstemmingu og því kemur mismunur í afstemmingu ef þeir eru notaðir á tímabilinu. En þeir koma fram í framtali og við skil launamiða

Upplýsingar frá skattinum:

Allir styrkir eru skattskyldir. Það er hægt að færa frádrátt á móti einhverjum hlut af styrkjum.

Þetta kæmi sem skattskyld laun með reitanúmer 009.

Svo væri frádráttur á móti styrk 149 einhver fjárhæð sem kæmi til lækkunar í sér kafla á framtali. Við flytjum hann í rétt svæði við stofnun framtals.

https://www.skatturinn.is/einstaklingar/tekjur-og-fradrattur/styrkir/

Úttak-Launamiðar-Uppsetning samtalna.

Þarna er gott að skoða launamiðareitina, byrja á 02 og bera saman við fyrirtækjalista ársins.

Image Added




Image Added

Hægt er að taka út Launaframtal þarf til að stemma af við fyrirtækjalista og við samtalsblað launamiða.

Úttak - Launaframtal

  • Mótframlag launagr. í lífsj á launaframtali á að stemma við samtölu fyrir launaliði 9020 og 9030 á fyrirtækjalista, í einhverjum tilfellum eru launaliðirnir fleiri
  • Upphæðir í reit 02,60,33,16 á framtalinu er stemmt af við samtalsblað launamiða
  • Sundurliðun tryggingagjalds eftir mánuðum er borið saman við skil til RSK, inni á vefsvæðinu ykkir - skoða Skoða fyrri skil.

Athugið að það á ekkert að vera í Stofn til tryggingagjalds utan staðgreiðslu.


Ef þetta stemmir allt eru launamiðar tilbúnir til sendingar

Info

Athugið að Launaframtal hefur ekki verið uppfært því RSK krefst ekki skila á þessu eyðublaði lengur.

Ef það eru launamiðareitir sem hafa bæst við að undanförnu þá hefur þeim ekki verið bætt við launaframtalið.



Info

Ef það er óskýrt á hvaða launamiðareit viðkomandi launaliður (laun) á að vera skilgreindur á þá eru hægt að sjá nánari upplýsingar hér