Starfsgreiningar eru notaðar til að halda utan um kröfur sem fyrirtækið gerir til hópa starfsmanna eða jafnvel allra starfsmanna. Hægt er að stofna starfsgreiningar fyrir eftirfarandi hópa (þ.e. skipulagsheildareiningar); fyrirtækið í heild (Launagreiðandi), deildir, verk, starfsstéttir, starfsheiti, eða staka starfsmenn. Á starfsgreininguna eru svo settar þær kröfur sem gerðar eru til viðkomandi hópa Hægt er að gera kröfur um:
- Skráningu aðstandanda (að upplýsingar um nánustu aðstandendur séu skráðar í H3)
- Efni (að starfsmaður hafi lokið ákveðnu námskeið/fræðsluviðburði)
- Menntun (að starsfmaður hafi tiltekna menntun)
- Tegundir hluta (að starfsmaður hafi fengið ákveðinn hlut sbr. tölvu, sími, aðgangkort o.s.frv.)
- Tegundir skírteina (að starfsmaður hafi náð sér í ákveðin réttindi (skírteini) og að það sé í gildi)
- Tegundir viðhengja (að starfsmaður hafi ákveðna tegund viðhengja vistuð í skjalaskáp)
- Tegundir þekkingar (að starfsmaður hafi aflað sér ákveðinnar þekkingar)
Starfsgreiningar eru notaðar til að hafa yfirsýn yfir kröfur gagnvart starfsmönnum. Þegar stofnaðar hafa verið kröfur er hægt að taka út Vöntunarlista en hann birtir yfirlit yfir óuppfylltar kröfur á starfsmenn. Einnig er hægt að skoða stöðu allra karfna á Starfsgreiningaryfirliti.
Til að stofna kröfu er smellt á Starfsgreining. Hér má sjá dæmi um Starfsgreiningu fyrir alla starfsmenn fyrirtækis / stofnunar.
Hér er valin sú skipulagseining sem krafan eða kröfurnar eiga að taka til. Smellt er á Velja skipulagseiningu og velur svo úr ákveðna hópa úr lista eða ákveðna starfsmenn ef kröfurnar eiga við einstaka starfsmenn.
Hér eru svo settar inn þær kröfur sem gera á til þessa tiltekna hóps. Í þessu tilfelli eiga allir starfsmann að hafa skráða aðstandendur, að fá buxur, að hafa ráðningasamning í skjalaskáp og fara á Eiturefna námskeið.
Þegar skipulagseining hefur verið valin að ofan, birtist hér nafnalisti yfir þá starfsmenn sem teljast til hennar.