Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 8 Current »

Endurnýjunartímabil skírteina (Grace period) er afbrigði af tengingu skírteinis og fræðslu. Þegar kveikt er á endurnýjunartímabili:

  1. Getur starfsmaður lokið fræðslu áður en skírteini rennur út, en nýr gildisdagur reiknast frá fyrri lokadegi, svo lengi sem fræðslunni var lokið innan gildistímabilsins.

  2. Mun gildistími á skírteini alltaf miðast við síðasta dag viðkomandi mánaðar.

Endurnýjunartímabil skírteinis sést undir Tegundir Skírteina > Aðgerðir>Endurnýjunartímabil:

Kveikt á endurnýjunartímabili

Þegar kveikt er á endurnýjunartímabili þarf að setja inn hvað það á að vera margir mánuðir (tala frá 1-99) í reitnum Fjöldi mánaða.

  • Fjöldi mánaða segir til um hversu marga mánuði áður en skírteinið rennur út starfsmaðurinn hefur til að endurnýja skírteinið.

  • Þegar endurnýjunartímabil er notað hakast sjálfkrafa í Kveikt á endurnýjun skírteina í lok mánaðar.

  • Hægt er að haka við að skírteini uppfærist alltaf í lok mánaðar án þess að nota endurnýjunartímabil.

Dæmi:

Endurnýjunartímabil er stillt á 3 mánuði. Starfsmaður er með skírteini sem rennur út 28.02.2020 og gildistími skírteinisins er 12 mánuðir

  • Ef stm. lýkur fræðslu 14.01.2020: mun uppfært skírteini gilda til 28.02.2021 (þar sem þetta er innan Endurnýjunartímabils sem er 3 mánuðir)

  • Ef stm. lýkur fræðslu: 17.09.2019 mun uppfært skírteini gilda til 30.09.2020 (þar sem það eru meira en 3 mánuðir áður en skírteinið rennur út þá verður dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)

  • Ef stm. lýkur fræðslu: 05.03.2020 mun uppfært skírteini gilda til 31.3.2021 (þar sem skírteini er þegar útrunnið er nýja dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)

ATHUGIÐ:

  • Notandi þarf að hafa eininguna hrmgracep til að geta unnið með endurnýjunartímabil

  • Sé slökkt á endurnýjunartímabili mun gildisdagsetning skírteina sem þegar hafa verið uppfærð skv. endurnýjunartímabili EKKI breytast.

  • No labels