- Created by HCM on Jul 13, 2018
You are viewing an old version of this page. View the current version.
Compare with Current View Page History
Version 1 Next »
7397 - Póstsendingar
Einhverjir viðskiptavinir sem eru í Office365 hafa lent í því að tölvupóstur sendist ekki úr H3 þegar verið er að senda pósta til aðila utan fyrirtækis/stofnunar. Þetta á t.d. við um póstsendingar í ráðningum og sendingar á skilagreinum í launum til Tollstjóra.
Ástæðan fyrir þessu er að Microsoft hefur hert reglur um það hvernig póstþjónar senda pósta og styðja því ekki lengur þá aðferð sem hefur verið notuð í H3. Til þess að bregðast við þessu höfum við gefið út uppfærslu 7397 þar sem þetta er lagað.
Mikilvægt er að uppfærslan sé tekin inn og brugðist sé við með því að fylgja leiðbeiningum hér að neðan.
- Ef þú ert ekki að nota Office365 til að senda tölvupósta þartu ekki að gera neitt. Annars þá þarftu að framkvæma skrefin hér fyrir neðan.
- Þegar uppfærslan er tekin inn þá eru núverandi stillingar vegna póstsendinga áfram virkar.
- Til þess að stilla nýja póstvirkni þá þarf:
- Notandi að vera með Kerfisstjóri – Fullur aðgangur eða einingu kerf1026
- Fara í Kerfisumsjón í H3+
- Smella á Uppsetning á póstsendingum
- Fylla inn upplýsingar varðandi póstþjóninn. Þær upplýsingar fáið þið hjá þeim aðila sem sér um póstþjóninn ykkar
- Þegar búið er að smella á Áfram þá hefur ný póstvirkni verið virkjuð
Ef það á að senda póst frá fleirri en einu netfangi þá verður að hafa einn notenda sem auðkennir sig á relay þjóninn (Settur upp í kerfisumsjón) það þarf svo að gefa þeim notanda „send as“ réttindi á þau netföng sem hann þarf að geta sent út frá. Einn notandi getur verið með „Send as“ réttindi á mörg netföng. Þar sem ekki er verið að auðkenna sig á pósthólfið sjálft (user/pass) þá getur viðkomandi pósthólf verið stillt sem shared mailbox og þarf þar af leiðandi ekki leyfi í O365.
Í uppfærslunni er einning verið að laga fræðsluaukann í Fræðslu og að virkja ferli við að breyta stöðu umsóknar.
Mars 2018
7347 - Mannauður og laun
Mannauður
Verkferlar:
- Lagfæringar á breytum í tölvupósti og nokkrum breytum bætt við:
- Ljúka fyrir
- Síðast ráðinn
- Hætti
- Athugasemd birtist sem lætur vita að verkferli hafi verið ræst
- Hægt er að hafa marga ábyrgðarmenn
- Hægt er að eyða prófunargögnum eftir ákveðnum forsendum
Signet:
- Komin yfirlitssíða yfir þau skjöl sem búið er að senda í Signet
- Hægt að eyða skjölum sem hafa verið send í Signet
- Hægt að senda pósta frá Signet frá nýju netfangi
- Hægt að stilla að H3 sæki sjálfkrafa skjöl í Signet
Laun - lagfæringar H3+
Skrá tíma og laun
- Búið að færa „eyða“ hnapp aftast í röðina og búið að afmarka hnappa í kringum aðgerðirnar Staðfesta, reikna og eyða.
- Hnappar verða ekki lengur óvirkir þegar færslum er eytt úr skrá tíma og laun
- Ekki er þörf að endurhlaða þegar mánaðarlaun í orlofi eða veikindum eru skráð
- Frá því að leitað er að starfsmanni þangað til skráð eru á hann laun ætti að vera orðið þjálla
- Einungis þarf að smella einu sinni á enter við leit
- Strax hægt að nota örvar til að leita í listanum sem kemur upp
- Alt og ör til hægri til að fara í skráningarmynd
- Þegar skráningarmynd opnast þá er bendillinn staddur í skráningartöflunni
- Ctrl+PageDown og Ctrl+PageUp flakkar á milli starfsmanna
- Flýtileiðin Alt+4 opnar gluggann fyrir skattkort
Annað í launakerfinu
- Hægt er að senda launaseðla í heimabanka á ensku
- Það koma ekki lengur aukastafir þegar bókhaldskráin er tekin út á skjá
- Stofna og eyða þrepi í launatöflu hefur verið lagað
- Skýrslur:
- Þegar skýrslur eru opnaðar á skjá er nú hægt að smella á myndir til að opna í Word, pdf eða Excel. Þegar smellt er á eitthvað af þessum valmyndum opnast gluggi þar sem beðið er um staðsetningu til að vista skjalið á. Eftir að staðsetning er valin opnast skráin. Þetta milliskref er sett inn þar sem við getum ekki ábyrgst að skjalið eyðist eftir að því hefur verið lokað ef við opnum skjalið beint. Hér er það þá á ábyrgð notenda að eyða skjölunum eftir notkun.
- Page up og page down flettir á milli blaðsíðna
- Lagfæring á villu við sendingar á XML skilagreinum úr H3+
- Launaseðlar í heimabanka lagaðir
- Þegar valmyndin Skrá stöðluð menntastig er opnuð birtist listinn sem notendur hafa fyllt út.
- Viðvörun sem hefur komið þegar vefgluggar voru opnaðir í H3+ ætti að hætta að birtast
Hjá einhverjum notendum kom upp villa þegar skýrslur voru opnaðar og ætti þetta að vera komið í lag
Febrúar 2018
7341- Mannauður, fræðsla og laun
Mannauður:
- Viðbætur í mannauðslistann
- Fyrst ráðinn
- Ástæða (starfsloka, leyfis)
- Hættur (Dags.hætti)
Fræðsla
- Ráðningahlutfall er komið í fræðsluleit
Verkferlar og verkborð
- Hægt að sía á verkefni og í lista á verkborði
Laun
- Hægt að reikna uppbætur í sitthvoru lagi á fyrirfram og eftirá greidda starfsmenn
- Komin fyrirspurn undir Laun – Greiningar – Fyrirspurnir – Samþykktaraðilar sem gefur heildaryfirsýn yfir aðila sem hafa samþykkt laun sem og hvenær það var gert. Hægt er að skoða þetta niður á útborgun og samþykktaraðila.
Lagfæringar:
- Á innlestri á gögnum úr Excel
- Á kvittunum vegna skila til RSK – fara sem viðhengi á mánuði
- Á að uppfæra skýringartexta í ráðningarvef
- Á því þegar verið er að breyta eða stofna starfsmenn
- Á þegar farið er í Skrá tíma og laun og smellt á F8 kemur upp sú útborgun sem verið er að vinna í og hægt er að skoða launaseðla fyrir allar útborganir
- Á breytingum á dagsetningum í Skrá tíma og laun
- Á einingunni Laun (L)
- Á reikningi fyrir eingreiðslur í Áætlunum
- Á villu sem kom upp við að vista í skjámyndum
7339 - Laun, áætlanir
Laun
- Þegar réttindi eru núllstillt er færslum sleppt sem skila niðurstöðu 0,0000....... eða -0,0000.......
- Lagfæring á villu við innskráningu.
- Skráarslóð fyrir bókhald löguð, vorum í vandræðum með slóðir sem voru mjög langar.
- Lagfæring á skilagreinasendingum.
Áætlanir
- Áætlanir / Stilla dálka og reikning, möguleikar á merkingum lagaðar.
H3+
- Villur sem voru að koma upp í listum í H3+ lagfærðar.
7336- Laun
Laun - lagfæringar:
- Hægt að breyta nafni á skjali þegar það er vistað í H3+ og í viðhengi starfsmanns
- Á aðgangi að töflum fyrir hlutverkið Laun fullur í H3+
- Á villu sem kom upp í samþykktarferli ef margir starfsmenn eru skoðaðir á sama tíma
- Á birtingu ráðningabeiðna
- Á minnisleka í vefþjónustu
- Á öðrum minniháttar villum sem hafa verið að koma upp í H3+
Janúar 2018
7364 - Fyrsta útgáfa launa í H3+
Þessi uppfærsla gerir kröfu um að á vefþjónum og vélum sé .NET 4.7 eða nýrra
Undanfarna mánuði höfum við unnið að því að endurgera útlit á H3+ í samvinnu við viðmótshönnuði. H3 er nú kominn með nútímalegra viðmót og aðgerðir, viðhengi og forsniðin skjöl eru sýnilegri notendum. Ásamt þessu höfum við útbúið nýja virkni í kerfinu sem auðveldar fyrirtækjum að skrá upplýsingar á starfsmenn og störf fyrir jafnlaunavottun.
Leiðbeiningar verða sendar í tölvupósti til þeirra notenda sem eru á póstlista H3.
Helstu þættir í uppfærslunni eru:
- Nýtt viðmót á H3+
- Búið að snúa við innskráningu. Notandi sér aðeins þau fyrirtæki sem hann hefur aðgang að
- Flest í kerfinu er nú aðgengilegt með flýtilyklum
- Auðveldara og sýnilegra aðgengi að:
- Aðgerðum
- Forsniðnum skjölum
- Viðhengjum
- Ný flýtileið (e. quick launch)
- Ýmsar lagfæringar á verkferlum
- Stuðningur við jafnlaunavottun með skráningum á starfsmenn og starfaflokka
- No labels