Nýir launaliðir og kostnaðartegundir v/COVID – 19
Það getur verið mjög mismunandi eftir fyrirtækjum hversu mikið þau vilja aðgreina kostnað sem tengist breytingum á viðveru starfsfólks vegna Covid-19.
Nokkur dæmi:
Fjarvinna vegna aðskilnaðar starfsfólks
Fjarvinna vegna sóttkví
Fjarvist vegna hólfunar vakta (skipta fólki upp til að dreifa áhættu)
Sóttkví skv. fyrirmælum og möguleikar til fjarvinnu eru ekki til staðar.
Veikindi vegna covid-19
Sóttkví að eigin ákvörðun - launalaust
Hægt er að stofna sérstakar kostnaðartegundir til að aðgreina kostnaðinn.
Tillögur að kostnaðartegundum:
Fjarvinna – FV
Launuð fjarvist – LFV
Veikindi vegna Covid-19 – VCO
Til að stofna nýja kostnaðartegund er farið í Stofn – Launaliðir – Kostnaðartegundir
Ný færsla (Insert, Ctrl+N)
Tillögur að nýjum launaliðum fyrir mánaðarlaun og dagvinnu.
101635 – Mánaðarlaun í fjarvinnu
101655 – Mánaðarlaun vegna aðskilnaðar (fær greidd laun en getur ekki unnið heima)
101695 – Mánaðarlaun í sóttkví
101696 – Launalaus sóttkví að eigin vali
105635 – Dagvinna í fjarvinnu
105655 –Dagvinna vegna aðskilnaðar
105695 – Dagvinna í sóttkví
105681 – Covid-19 veikindi – Aðgreint frá öðrum veikindum
Athugið að nota 105 launaliðina ef að tímar eru að koma úr viðverukerfi.
Reiknistofnar – Athuga: Ef á að niðurfæra veikindaréttinn þarf að muna eftir að setja inn reiknistofninn UVEIK. Þá niðurfærist veikindaréttur á söfnunarliðinn 680 veikindi.