Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 3 Next »

Þegar lesa á gengi inn í H3 með Excel-skjali  

Skref 1 - Eining

Setja þarf á notandann eininguna: TMFW-Import-Excel

Það er gert með því að velja eitthvert hlutverk sem notandinn er með og bæta einingunni við með fullum aðgangi.

Skref 2 - Stofna innsláttarskjal

Stofna þarf innsláttarskjal fyrir töfluna sem á að flytja gögn inn í.

Það er gert með því að velja Gjaldmiðlar - Gengisskráning - hægri smella í listanum og velja Flytja inn - Stofna innsláttarskjal

Við það opnast Save As gluggi og þar þarf að velja hvar vista á skjalið sem verið er að búa til.

Valin er mappa/staðsetning og skránni gefið nafn

Þegar smellt er á Save opnast Excel skjalið. Dæmi eins og hér að neðan:

 

Skref 3 - Hreinsa gögn

Að vinna með skjalið:

Ef bæta á nýjum gögnum við skjalið, eins og að skrá nýtt gengi er best að hreinsa gömlu gögnin út og skrá þau nýju inn. Í skjalinu hér að ofan þarf að skrá inn í dálka B til E, nauðsynlegt er að hafa A dálk tóman. Ef skjalið er ekki hreinsað áður en það er flutt inn í kerfið þá er listinn yfirskrifaður og það kemur t.d. ný dagsetning í færslu síðast breytt.

Skjalið ætti þá að líta svona út með A dálk tóman:

Þegar búið er að vinna með skjalið er það vistað og því lokað.

Skref 4 – Flyja inn Excel-skjalið

Loka skrefið er að flytja inn Excel skjalið – það er gert með því að vera í listanum (Gjaldmiðlar – Gengisskráning) sem flytja á gögn í, hægri smella og velja Flytja innFlytja inn excelskjal. Athugið að skjalið má ekki vera opið á meðan það er flutt inn.

 Við það opnast glugginn hér að neðan og skjalið er fundið smell á það og síðan á Open:

Eftir það opnast þessi gluggi:

Ef hakað er í Staðfesta Excel skrá athugar kerfið hvort eitthvert svæði er tómt í skjalinu sem má ekki vera tómt við flutninginn.

 

 

  • No labels