Ferli: Laun - Stofn - Gjaldheimtur
Hér eru stofnaðar þær gjaldheimtur sem fyrirtækið þarf að draga af launum starfsfólks.
Dæmi um gjaldheimtur eru opinber gjöld sem innheimt eru af tollstjóra eða innheimtustofnun sveitarfélaga (meðlagsgreiðslur). Einnig er hægt að nota gjaldheimtur til að innheimta félagsgjöld í starfsmannafélög og annan fastan frádrátt.
Hverri gjaldheimtu er gefið númer.
Allar almennar upplýsingar eru skráðar fyrir viðkomandi gjaldheimtu.
Greiðsla:
Skilgreining á greiðslumáta, greiðsludagsetning og bankaupplýsingar viðtakanda
Skil:
Einkennisnúmer er það númer sem skrifast sem einkenni félags í rafrænni skrá.
Í "Skilaaðgerð" er valið um það hvernig senda á skilagreinar, sjá möguleika í uppfletti.
Ef valið er Vefþjónusta þarf að setja inn notandanafn og lykilorð í töfluna Stofn/Veflyklar.
Ef skilaaðgerð er valin "Tölvupóstur" þarf að setja inn netfang móttakanda.
Gjaldheimtur eru síðar skráðar undir Gjöld hjá viðkomandi launamanni.