Í þessari orlofsaðferð reiknast áunnir orlofstímar út frá orlofsprósentunni sem er í starfsmanni og greiddum launum. Orlof reiknast ofan á orlof og engin ávinnsla þegar farið er í frí.
Reiknihópinn RORLOF á að setja á launagreiðanda.
Reiknistofninn UORLOF á að setja á launalið “Mánaðarlaun í orlofi” (oftast LL1012) og á launalið "Dagvinna í orlofi" (oftast LL1052).
Staðan á launamanni er alltaf nákvæm þ.e. orlof er komið á orlofið.
Ef launþegi fer í launalaust frí sem ekki á að hafa áhrif á orlofsuppsöfnun þá þarf að passa upp á að skrá fríið á launalið sem ekki er með stofninn SORLOF.
Þessi aðferð getur umbreytt öllum launum yfir í orlofstíma og við uppgjör á orlofi er notaður sami launaliður og þegar farið er í frí.
Töflurnar hér að neðan sýna útreikning á orlofi eftir mismunandi vinnuskyldu. "Deilitala orlofs" er sett eins og vinnuskylda.