Stjórnendur hafa aðgang að fjölda skýrslna undir Fólkið mitt>Aðgerðir>Skýrslur.
Úr listanum er valin sú skýrsla sem á að skoða. Eftir það er hægt að velja tímabil, starfsmenn eða önnur eigindi sem skýrslan býður upp á.
Eftirfarandi skýrslur eru í boði:
Staða tímabanka birtir meðal annars upplýsingar um hvort og hversu marga tíma starfsmenn eiga í orlof, hvíldartíma og vetrarfrí.
Summuskýrsla gefur möguleika á að skoða skráningar undirmanna á ákveðna ástæðu eða taxta á völdu tímabili. Þannig er t.d. hægt að skoða hversu marga tíma ákveðinn starfsmaður hefur tekið í orlof eða verið veikur síðustu mánuði.
Tímaskýrsla deildar sýnir tímaskráningar allra starfsmanna í tiltekinni deild eftir tímabilum. Hafa ber í huga að ef starfsmaður er færður á milli deilda færast skráningarnar með viðkomandi starfsmanni.
Staðfestingarskýrsla: sýnir allar skráningar starfsmanna sem viðkomandi stjórnandi ætti að staðfesta tíma fyrir.
Úttektir í mötuneyti: gildir ef mötuneytiskerfið Matráður er notað og sýnir þá úttektir starfsmanna í mötuneytinu á ákveðnu tímabili.
Akstursskráningar - Samtölur: sýnir samtölur skráninga starfsmanna í akstursbók fyrir hvern hóp eða deild á ákveðnu tímabili.
Starfsaldur sýnir lista yfir starfsfólk og starfsaldur þess í árum og mánuðum.
Færslur á verknúmer: gefur möguleika á að skrá verknúmer og velja tímabil til að skoða allar færslur sem hafa verið unnar á tilteknu verki.