Ferli: Laun - Stofn - Skatthlutföll
Í skatthlutföllum er haldið utan um staðgreiðsluprósentu og upphæð persónuafsláttar samkvæmt ákvörðun RSK, ásamt tryggingagjaldi og öðrum þáttum sem varða útreikning á staðgreiðslu. Álagningin er mismunandi frá ári til árs og þarf notandinn því að fylgjast með þeim breytingum sem verða. Þegar breytingar verða er búin til ný færsla (Insert) með nýjum gildistíma sem er á forminu mm.yyyy. Forsendurnar eru skráðar inn og vistað með Crtl+S. Athugið að muna eftir að skrá inn þrepin í neðri hluta myndarinnar. Gildistíminn stjórnar því hvaða tafla er notuð til útreiknings í launaskráningu hverju sinni.
Kerfið heldur utan um Almenna skattskyldu, Takmarkaða skattskyldu, Takmarkaða skattskyldu með A1 vottorði, Fríkort og ekkert tryggingagjald, Erlent A1 vottorð og Íslenskt A1 vottorð, fyrir íslendinga sem starfa erlendis. Ekki er nauðsynlegt að viðhalda öðrum tegundum en eru notaðar á hverjum stað.
Stofn - Skatthlutföll
Yfirlitsmynd yfir tegundir skatts
Allar skattategundir fara með rafrænum hætti til RSK, nema skattategund 6 þeim upplýsingum þarf að skila handvirkt á eyðublaði 5.26 Sundurliðun á launum og tryggingargjaldi manna, samkvæmt E101 vottorði, mánaðarlega.
Eyðublaðið má finna hér: https://www.rsk.is/media/rsk05/rsk_0526.is.pdf
Skráningamynd Almennrar skattskyldu.
- Birt með fyrirvara
Allar upplýsingar skráðar með fyrirvara með breytingu hjá RSK skráð 27.12.2022
Nánari upplýsingar má finna á vef RSK
Einnig má finna upplýsingar inn á vef Fjármála- og efnahagsráðuneytis.