Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 6 Next »

Val á dálkum í samþykkarferli

Til að velja hvaða dálkar birtast í samþykktarferli eru notaðir Greiningarflokkar. Hægt er að númera greiningarflokka til að velja í hvaða röð þeir birtast. Greiningarflokkar sem ekki eru í útborgun sjást ekki í samþykktarferli.

Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningarflokkar

Birtist sem:

Flokkun á greiningartegundum í samþykktarferli

Allir launaliðir eru tengdir með greiningartegund. Hver greiningartegund er sett undir viðeigandi greiningarflokk eins og þeir eiga að birtast í samþykktarferli.

Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningartegundir

ATHUGIÐ: Til að veikindakostnaður verði sýnilegur í samþykktarferli þarf:

  • Að hafa kostnaðartegund fyrir veikindi og hún þarf að vera merkt með Stöðluð flokkun = „STVE“

  • Launaliður veikinda að vera með reiknistofninn RSTGILDI (stöðugildi)

NOTENDAAÐGANGUR AÐ SAMÞYKKTARFERLI

Launafulltrúi

  • Í hlutverk launafulltrúa s.s. „Laun –(F)“ er sett einingin 5009 til að hefja staðfestingu

  • Aðgangsstýringin Launaáætlun - Raunmánuður þarf að vera valinn frá þeim tíma sem aðili má sjá gögn og Launaáætlun - Deildir

Stjórnandi

  • Í hlutverki stjórnanda þurfa að vera einingarnar 5008 „Laun –Samþykktaraðili“ og 5022 "Laun - yfirlits síða"

  • Einnig þarf að gefa stjórnanda aðgang að þeim deildum sem hann á að samþykkja með því að setja á hann aðgangsstýringar:

  • Launaáætlun / Laun–Deildir

  • Launaáætlun / Laun –Raunmánuður frá og með

  • Launaáætlun –Áætlanamánuður frá og með

Eftirlitsaðilar

  • Fyrir aðila s.s stjórnendur eða endurskoðendur sem eingöngu eiga að fylgjast með samþykktarferli er búið til hlutverk með einingu nr 5010 og 5022.

Uppsetning á vef

Ef þú færð villu við að opna samþykktarferlið eftir að hafa fylgt leiðbeiningunum hér að ofan gæti þurft að setja upp hjá þér vefsíðu sem kerfið þarf að nota við þessa vinnslu. Vinsamlega sendu villuna á h3@advania.is og við göngum í málið.

 

  • No labels