Ef ekki hentar að samþykkja launin eftir deildum eru settir upp samþykktarhópar og "Samþykktaraðili" settur á hópana.
Gera þarf stillingu inni í hverju fyrirtæki til að hægt sé að nota samþykktarhópa fáið aðstoð hjá ráðgjafa h3@advania.is
Búa þarf til samþykktarhópa og hver á að samþykkja hvern hóp það er gert í Laun - Samþykktarhópar - Samþykktarhópar
Til að sjá hvaða starfmenn eru í hvaða hóp er farið í Yfirlit samþykktaraðila, þar má sjá fremst hver samþykktarhópurinn er:
Þegar kerfið er stillt á samþykktarhópa kemur sjálfkrafa hópurinn OSG eða Óskilgreindur hópur á alla starfsmenn. Við nýskráningu starfsmanns eru þeir merktir "Ekki í hóp"
Tengja marga starfsmenn í sama samþykktarhóp:
Laun / Starfsmenn / Listi
Ctrl haldið niðri og smellt á þá starfsmenn sem á að setja í hópinn
Hægrismellt í listann - Setja í samþykktarhóp, þá kemur upp ferill hægra megin á síðu þar sem viðeigandi hópur er settur inn
Framkvæma
Hafi útborganir þegar verið samþykktar eftir deildarfyrirkomulaginu dettur sú samþykkt út þegar stillt er á hópa.
Hjá fyrirtækjasamstæðum er hægt að láta samþykkja eftir deildum í einu fyrirtæki og hópum í öðru.
Hafið samband við ráðgjafa h3@advania.is til að leita aðstoðar.