Notendur geta séð mismunandi gögn í áætluninni allt eftir heimildum hvers og eins.
Ef áætlunin er fyrir heilt ár þá eru línur fyrir hvert stöðugildi í 12 mánuði.
Fyrir neðan skráningarlínurnar má sjá upplýsingar um þann starfsmann sem er verið að vinna með hverju sinni og hægt að skrá þar breytingar á helstu stofnupplýsingum og reikniliðum sem uppfærast þá einnig í línunni.
Dálkar í áætlun.
Það eru til þrjár mismunandi tegundir af áætlunardálkum sem einingar, upphæð og prósenta.
Ef áætlunardálkurinn er einingar, þá koma þrír dálkar í áætlun einingar, einingaverð og samtals. Einingarnar eru sóttar í raungögn (oftast fyrra árs) og einingaverðið í launataxta starfsmannsins eins og þau eru í dag.
Ef áætlunardálkurinn er einungis krónudálkur, er um fastar krónutölur að ræða sem ekki taka breytingum samkvæmt prósentuhækkunum á launatöflunni.
Ef áætlunardálkurinn er prósenta er prósentan sótt í reiknihópa á þeim starfsmönnum sem það á við um.
Hvernig er unnið í áætluninni.
Þegar byrjað er að eiga við gögnin í áætluninni er mælt með að merkja vinnustöðuna "Í vinnslu" - Þú ferð í Aðgerðir / Áætlun / Merkja vinnustöðu og velur þær deildir sem við á. Þegar vinnslu er lokið eru færslurnar merktar á sama hátt sem "Lokið"
- Eða velur einstaka starfsmann og breytir í línu vinnustöðunni og dregur niður.
Ef hægrismellt er í fyrirsagnarlínunni má fela dálka sem ekki er verið að vinna með
Dálka má færa til með því að smella á þá, halda músarhnappinum niðri og færa og sleppa þar sem dálkurinn á að vera.
Með því að smella á einhverja fyrirsögn er gögnunum raðað eftir stafrófs- eða númeraröð eftir því sem við á.
Ctrl+F í skráningarlínu skilar þér upp í leitarglugga þar sem hægt er að leita t.d. að tilteknum einstaklingum. Til að losa um leitina er farið aftur í leitargluggann og leitin hreinsuð og ýtt á ENTER, þá koma öll gögnin eins og þau voru áður.
Ef það koma deplar á skjánum í hring sem snúast og ekkert gerist þá hefur einhver villa komið upp í filteringu eða röðun sem kerfið ræður ekki við, í þeim tilfellum er nóg að loka glugganum, ekki þarf að endurræsa kerfið.
Til að afrita eina eða fleiri eru línurnar valdar og smellt á Crtl+Shift+C og Crtl+Shift+V til að líma þær inn aftur.
Til að bæta inn línu er smellt á Insert og hver dálkur fyrir sig er sleginn inn. Þeir dálkar sem eru skilyrtir eru merktir með *.
Ef þú vilt velja allar línur í einum dálk, skaltu staðsetja þig í línu og ýta á Crtl+bilslá, þá skilar enter þér niður dálkinn.
Ef þú vilt afrita gildi í efstu línu, skaltu staðsetja þig í línu og ýta á Crtl+bilslá, og síðan Crtl+D þá afritast efsta færslan niður allan dálkinn.
Fremst í línu sýnir þér hvaða lína er valin.
Fremst í dálki sýnir þér hvar músarbendillinn er staðsettur
Til að afrita innihald dálka er bent með músinni í hægra hornið niðri og dregið niður dálkinn.
Ef upphæðin í samtals er ekki sama og einingaverð ef 1 eining er skráð er það vegna þess að settar hafa verið inn forsendur til launahækkunar.
Það er hægt að flytja gögnin út í excel Crtl+F9.
Til að sjá samtölu á dálki er hægrismellt og valið Greiningar/Samtala eða annað sem þú vilt sjá.
Aðgerðir
Undir "Aðgerðir" efst í hægra horni myndarinnar er hægt að framkvæma eftirfarandi aðgerðir:
Afrita línu út tímabil, notað ef þú hefur bætt við línu og vilt hafa hana eins út árið
Afritað allar línur út tímabil, notað ef unnið er með einn mánuð í áætlun sem á að vera eins allt árið.
Afrita áætlun, þá er verið að afrita eina áætlun yfir í aðra.
Ekki er mælt með að nota þessa aðgerð nema í samráði við umsjónaraðila launaáætlunar.
Breyta vinnustöðu, notað til að upplýsa aðra um stöðu á áætlunargerðinni, þegar þú eða stjórnandi hefur lokið þinni vinnu setur þú vinnustöðuna á Lokið og hún er sett á samþykkt þegar það á við.
Stofna persónusniðmát.
- Mælum með að þetta sé unnið með samráði við umsjónaraðila launaáætlunar.
Endurreikna áætlun, sækir ný gildi í "Hlutfall opinberra gjalda" og "Launatöflubreytingar" og reiknar upp launatengd gjöld.
- Athugið þessi vinnsla gæti tekið tíma, fer eftir stærð gagna.
Það sem þarf að huga að:
Er einhver með óeðlilega tíma í Vinnuskylda 100%. Ef upplýsingarnar eru ekki réttar í skjalinu má breyta þeim.
Samtals einingar mánaðarlauna/dagvinnutíma allra starfsmanna ættu að endurspegla stöðugildi á hverri deild á völdu tímabili, ef það gerir það ekki þarf að bæta inn í áætlunina, fella út eða breyta.
Er einhver með óeðlilegar einingar/upphæð vegna mánaðarlauna eða dagvinnu, er ástæða til að lagfæra.
Gæti verið of lágt vegna launalauss leyfis
Gæti verið of hátt vegna orlofsuppgjörs.
Ef starfsmaður í áætluninni er hættur þarf að skoða hvort einhver hafi komið í staðinn og gera þá breytingar á línunni til samræmis við það.
Ef enginn hefur komið í staðinn þá er línunni eytt úr skráningunni en athugið að það hefur áhrif á heildarstöðugildi deildarinnar.