Aðilar þurfa að vera með rafræn skilríki til þess að geta undirritað. Til þess að senda skjöl til undirritunar þarf að vera staðsettur í lista með með starfsmann / umsækjanda sem á að fá skjalið sent í gegnum Signet valinn, hvort sem er í gegnum H3 Ráðningar, H3 Stjórnun eða H3 Laun. Því næst er smellt á Signet hnappinn og þá opnast þessi skjámynd:
Veldu viðkomandi starfsmann/umsækjanda úr starfsmanna/umsóknalistanum
Smelltu áSignethnappinn - þá opnast glugginnSenda gögn í rafræna undirskriftmeð upplýsingumum viðkomandi starfsmann/umsækjanda
Velja þarf skjalið sem á að undirrita annað hvort með því að draga það yfir gluggann eða með því að smella á möppuhnappinn í reitnumSkrá. Þegar smellt er á hnappinn til að velja skjal birtast eingöngu þær skrár sem eru á pdf formi.
Því næst er tölvupóstsniðmát valið úr fellilista og þegar það hefur verið valið kemur sjálfkrafa sú tegund skjals sem hefur verið hengd á tölvupóstsniðmátið í reitinnTegund skjals.
ATH. Til þess að ákvarða hvaða tegundir skjala birtast þarf að haka við tegundirnar í H3 Windows clientinum, í Mannauður > Skjalaskápur > Tegundir viðhengja.
Skrá Heiti skjals
Yfirfara hvort nafn starfsmanns/umsækjanda, kennitala og netfang sé rétt. Netfang er sótt í reitinn Vinnunetfang í h3. Ef einstaklingur er einnig með skráð persónulegt netfang er hægt að velja það úr fellilista, auk þess sem hægt er að skrifa netfang í reitinn ef þörf er á.
Tímarammi undirritunarsýnir tímabilið sem skjalið á að vera aðgengilegt í Signet. Reiturinn Dags. frá birtir sjálfkrafa daginn í dag ogdags. til og meðbirtir sjálfgefið dagsetningu sem er fimm dögum síðar. Dagsetningunum má breyta að vild en vegna virkni á Signet yfirliti verða dagsetningar þó alltaf að vera fylltar út.
Hægt er stilla hversu oft og í hversu langan tíma áminningar um að skjal bíði undirritunar eru sendar. Við mælum með að hafa samband við H3 ráðgjafa varðandi aðstoð við það.
Veldu einn eða fleiri sem undirrita eiga skjalið fyrir hönd fyrirtækisins. Til þess að einstaklingar birtist í listanum Undirritun af hálfu fyrirtækis þurfa þeir að hafa verið skráðir í listann Rafrænar undirskriftir - Undirskriftaraðilar (notandi þarf að hafa eininguna SignetManager til þess að fá inn listann Undirskriftaraðilar). Í Signet hnappnum sjálfum má einnig velja einhliða undirritun ef um er að ræða skjal sem starfsmaðurinn þarf einn að undirrita.
Til að geta undirritað verður viðkomandi að hafa rafræn skilríki frá Auðkenni, t.d. í símanum sínum.
Hægt er að skrá inn texta og haka við að hann eigi að birtast fyrir ofan undirskrift stjórnanda, sbr. Undirritað f. h. xxxx
Því næst er smellt áSenda og lokaeðaSenda og velja annað skjal, ef senda á fleiri en eitt skjal á sama aðila, og þá er skjalið komið í undirritunarferli.