Virkni kemur til dreifinga með uppfærslu 9191 (september 2024)
Í boði fyrir þá viðskiptavini sem eru farnir að nota tímavídd.
Ekki hentar öllum fyrirtækjum að samþykkja laun eftir deildum og er því nú í boð að samþykkja útfrá hópum “samþykktarhópar” og því er samþykktarhópur skilgreindur á starfsfólk.
Ekki er hægt að nota samþykktar á Deildir og Samþykktarhópa á sama tíma, fyrirtæki þurfa að velja hvora leiðina þeir fara.
Ef valið er að samþykkja útfrá samþykktarhópum þá þarf að setja viðeigandi stillingu inn, hafið því samband við ráðgjafa á netfangið h3@advania.is
Stofna samþykktarhóp
Sjálfgefið fara allir starfsmenn í OSG samþykktarhópinn.
Setja þarf upp samþykktarhópa til að flokka saman starfsfólk sem stjórnandi á að samþykkja, og síðan veita stjórnanda aðgang að þeim samþykktarhópi.
Veldu Laun-Samþykktarhópar-Samþykktarhópar
Ýtir á INSERT eða CTRL + N hnappana til að stofna nýjan hóp
Skráðu Númer og Nafn á hópinn
Undir Samþykktaraðili: notandia valinn sem á að samþykkja laun hópsins.
Hægt er að setja fleiri en einn samþykktaraðila
Yfirlit samþykktaraðila
Til að kanna hvaða yfirmenn samþykkja hvaða hóp - sem og hvaða starfmenn eru í hvaða hóp er farið í starfsmannalistann, ýtt á hnappana CTRL + R og draga dálkinn Samþykktarhópur þar sem stendur Dragðu hingað titil dálksins sem þú vilt draga saman á.
Tengja marga starfsmenn í sama samþykktarhóp:
Notendum gefst kostur á að Breyta opinni tímavídd eða stofna tímavídd hjá mörgum starfsmönnum í einu í gegnum Aðgerðir undir Starfsmenn
Tveir leiðir eru til í að velja starfsfólk sem eiga að breyta.
Með því að vera á starfsmannalistanum – velja einn starfsmann – ýta svo á Ctrl + Shift takkann á sama tíma ásamt ör upp/niður.
Með því að fara í vinnsluna Breyta opinni tímavídd – ýta á stækkunarglerið – haka við þá starfsfólk sem er verið að fara breyta – ýta á velja starfsmenn
Starfsfólk eru sett í þann samþykktarhóp sem þau eiga að vera skráð í.
Athugasemd verður að vera skráð - og svo smellt á Halda áfram og síðan Staðfesta skráningu
Einnig er hægt að breyta einum starfsmanni í einu með því að opna starfsmann - starf - opna nýjustu tímavíddina eða stofna nýja tímavídd - setja réttan samþykktarhóp á starfsmann - ýta á áfram.
Þegar starfsmaður er stofnaður eða samþykkishópur er tæmdur er starfsmaður sjálfkrafa settur í samþykktarhópin OSG-Óskilgreindur hópur.