Val á dálkum í samþykkarferli
Til að velja hvaða dálkar birtast í samþykktarferli eru notaðir Greiningarflokkar. Hægt er að númera greiningarflokka til að velja í hvaða röð þeir birtast. Greiningarflokkar sem ekki eru í útborgun sjást ekki í samþykktarferli.
Greiningarflokkurinn OSG verður að vera til, til að grípa launakostnað ef skráningu launaliða er ábótavant.
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningarflokkar
Birtist sem:
Flokkun á greiningartegundum í samþykktarferli
Allir launaliðir eru tengdir með greiningartegund. Hver greiningartegund er sett undir viðeigandi greiningarflokk eins og þeir eiga að birtast í samþykktarferli.
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningartegundir
ATHUGIÐ: Til að veikindakostnaður verði sýnilegur í samþykktarferli þarf:
Að hafa kostnaðartegund fyrir veikindi og hún þarf að vera merkt með Stöðluð flokkun = „STVE“
Launaliður veikinda að vera með reiknistofninn RSTGILDI (stöðugildi)
NOTENDAAÐGANGUR AÐ SAMÞYKKTARFERLI
Launafulltrúi
Í hlutverk launafulltrúa s.s. „Laun –(F)“ er sett einingin 5009 til að hefja staðfestingu.
Aðgangsstýringin Launasamþykkt - mánuður frá og með þarf að vera valinn frá þeim tíma sem aðili má sjá gögn og Launasamþykkt - Deildir.
Stjórnandi
Í hlutverki stjórnanda þurfa að vera einingarnar 5008 „Laun –Samþykktaraðili“ og 5022 "Laun - yfirlits síða".
Einnig þarf að gefa stjórnanda aðgang að þeim deildum sem hann á að samþykkja með því að setja á hann aðgangsstýringar: Launasamþykkt - Deildir og Launasamþykkt - Mánuður frá og með.
Eftirlitsaðilar
Fyrir aðila s.s stjórnendur eða endurskoðendur sem eingöngu eiga að fylgjast með samþykktarferli er búið til hlutverk með einingu nr 5010 og 5022.
NOTENDAAÐGANGUR AÐ SAMÞYKKTARHÓPA
Launafulltrúi
Í hlutverk launafulltrúa s.s. „Laun –(F)“ er sett einingin 5009 til að hefja staðfestingu og 5023 “Laun-Aðgangur að samþykktarhópum” til að stofna samþykktarhópa og setja starfsfólk í samþykktarhóp.
Aðgangsstýringin Launasamþykkt - Hópar og Launasamþykkt - mánuður frá og með.
Stjórnandi
Í hlutverki stjórnanda þurfa að vera einingarnar 5008 „Laun –Samþykktaraðili“ og 5022 "Laun - yfirlits síða".
Einnig þarf að gefa stjórnanda aðgang að þeim deildum sem hann á að samþykkja með því að setja á hann aðgangsstýringar: Launasamþykkt - Hópar og Launasamþykkt - mánuður frá og með.
Eftirlitsaðilar
Fyrir aðila s.s stjórnendur eða endurskoðendur sem eingöngu eiga að fylgjast með samþykktarferli er búið til hlutverk með einingu nr 5010 og 5022.
Uppsetning á vef
Ef þú færð villu við að opna samþykktarferlið eftir að hafa fylgt leiðbeiningunum hér að ofan gæti þurft að setja upp hjá þér vefsíðu sem kerfið þarf að nota við þessa vinnslu. Vinsamlega sendu villuna á h3@advania.is og við göngum í málið.