Val á dálkum í samþykkarferli
Til að velja hvaða dálkar birtast í samþykktarferli eru notaðir Greiningarflokkar. Hægt er að númera greiningarflokka til að velja í hvaða röð þeir birtast. Greiningarflokkar sem ekki eru í útborgun sjást ekki í samþykktarferli.
Greiningarflokkurinn OSG verður að vera til, til að grípa launakostnað ef skráningu launaliða er ábótavant.
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningarflokkar
Birtist sem:
Flokkun á greiningartegundum í samþykktarferli
Allir launaliðir eru tengdir með greiningartegund. Hver greiningartegund er sett undir viðeigandi greiningarflokk eins og þeir eiga að birtast í samþykktarferli.
Laun>Stofn>Launaliðir>Greiningartegundir
ATHUGIÐ: Til að veikindakostnaður verði sýnilegur í samþykktarferli þarf:
Að hafa kostnaðartegund fyrir veikindi og hún þarf að vera merkt með Stöðluð flokkun = „STVE“
Launaliður veikinda að vera með reiknistofninn RSTGILDI (stöðugildi)
NOTENDAAÐGANGUR AÐ SAMÞYKKTARFERLI
Launafulltrúi
Í hlutverk launafulltrúa s.s. „Laun –(F)“ er sett einingin 5009 til að hefja staðfestingu
Aðgangsstýringin Launaáætlun - Raunmánuður þarf að vera valinn frá þeim tíma sem aðili má sjá gögn og Launaáætlun - Deildir
Stjórnandi
Í hlutverki stjórnanda þurfa að vera einingarnar 5008 „Laun –Samþykktaraðili“ og 5022 "Laun - yfirlits síða"
Einnig þarf að gefa stjórnanda aðgang að þeim deildum sem hann á að samþykkja með því að setja á hann aðgangsstýringar:
Launaáætlun / Laun–Deildir
Launaáætlun / Laun –Raunmánuður frá og með
Launaáætlun –Áætlanamánuður frá og með
Eftirlitsaðilar
Fyrir aðila s.s stjórnendur eða endurskoðendur sem eingöngu eiga að fylgjast með samþykktarferli er búið til hlutverk með einingu nr 5010 og 5022.
Uppsetning á vef
Ef þú færð villu við að opna samþykktarferlið eftir að hafa fylgt leiðbeiningunum hér að ofan gæti þurft að setja upp hjá þér vefsíðu sem kerfið þarf að nota við þessa vinnslu. Vinsamlega sendu villuna á h3@advania.is og við göngum í málið.