Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 6 Current »

Fyrst þarf að varpa launaliðum yfir í Flóru, sjá leiðbeiningar hér: Varpa launaliði yfir í Flóru

Athugið, launaliðir fyrir styrki mega ekki vera skráðir undir Hlutföll Krónur í Launatöflu. Ef launaliðirnir eru skráðir þar munu styrkirnir ekki stofnast í H3 eftir að þeir hafa verið samþykktir.

image-20240919-131917.png

Stofna styrki

Notandi með kerfisumsjónar réttindi í Flóru er sá sem getur fengið heimild til að stofna og breyta uppsetningu á styrkjum.

Styrkir eru stofnaðir undir Styrkir - Uppsetning - Búa til styrk

Viðeigandi upplýsingar eru skráðar - ýtt á Vista.

image-20240919-132840.png

Undir Styrkir - Uppsetning er hægt að sjá alla þá styrki sem eru virkir, sem verða virkir í framtíðinni og þá styrki sem eru óvirkir.

image-20240920-105646.png

Ef farið er í Breyta á styrk er hægt að setja viðhengi með styrknum, hægt er að skrá algengar spurningar og svör við þeim, ásamt því að afvirkja styrk.

Upplýsingum um styrk líkt og heiti eða upphæð er aðeins hægt að breyta áður en fyrsta styrkumsókn berst.

image-20240919-134033.png

Hvernig styrkir birtast í H3

Heilsustyrkir og Símastyrkir birtast í bunka undir Laun - Laun - Bunkaskráning, númer bunkans mun byrja á GRA.

Segjum sem svo að það eru styrkir samþykktir í dag og svo styrkir samþykktir í næstu viku. Þá munu allar þær færslur stofnast í sama bunkanum, gefið að það sé innan sama mánaðar. Verklagið er hugsað sem svo að færslur eru settar í útborgun í lok mánaðar.

image-20240919-142509.png

Samgöngustyrkur er mánaðargreiðsla og birtist í fastir og hlutfallaðir liðir m.v. dagsetninguna sem styrkur var samþykktur. Því þarf að breyta dagsetningu í fyrsta dags mánaðar svo upphæð komi ekki hlutfölluð inn.

image-20240919-142330.png

Unnið er að því að geta sent styrki frá Flóru fyrir mismunandi tímabil.

  • Segjum sem svo að það þarf að vera búið að sækja um styrk fyrir tuttugasta hvers mánaðar til að fá styrkinn greiddan í næstu útborgun. Ef umsókn berst eftir þá dagsetningu þá á styrkur að vera greiddur í útborgun sem kemur eftir næstu útborgun.

  • Segjum sem svo að samgöngustyrkur var samþykktur um miðjan mánuð, en hann á að taka gildi í byrjun mánaðar eða byrjun næsta mánaðar. Þá mun samþykkjandi velja upphafsdagsetningu í Flóru og það mun vera “virkur frá” dagsetningin á tímavídd inn í H3.

  • No labels