Skattareglur eru settar upp samkvæmt ákvörðun RSK. https://www.rsk.is/einstaklingar/tekjur-og-fradraettir/dagpeningar/#tab2
- Setja inn "Númer". Vanalega er notuð skammstöfunin INN fyrir skattareglu vegna ferða innanlands og UT vegna ferða erlendis.
- Skilgreining á ferð sett í "Lýsing".
- Velja þarf í "Innanlands/Utanlands" hvort reglan heyri undir ferðir innanlands eða utan.
- "Staða" þarf að vera virk.
- Í "Annað" er hægt að setja texta að vild.
- Frádráttur á móti dagpeningum er settur í færslulínur neðst í myndinni. Sett inn gildisdagsetning, upphæð og gjaldmiðill.