Dreifing álags
Eitt af markmiðum H3 er að mögulegt sé að dreifa vinnu vegna starfsmannamála á fleiri starfsmenn. Aðgangsstýringar kerfisins gera m.a. kleyft að tilnefndur starfsmaður annist dagpeningagreiðslur og utanumhald en hafi ekki aðgang að öðrum hlutum kerfisins.
Allt á einum stað
Með H3 dagpeningum eru allar upplýsingar um dagpeningagreiðslur á einum stað og meðal annars hægt að nálgast yfirlit yfir heildargreiðslur, fjölda ferða, hvert var farið ofl.
Greitt í hvaða gjaldmiðli sem er
Kerfið gerir okkur mögulegt að greiða dagpeninga í hvaða gjaldmiðli sem er, t.d. með innborgunum á mismunandi gjaldeyrisreikninga starfsfólks. Við reiknum þetta hins vegar yfir í íslenskar krónur þannig að launamiðinn sé klár við árslok.
Dagpeningayfirlit
Dagpeningaryfirlit er til staðar í kerfinu og auðveldar það starfsfólki utanumhald með greiðslunum og sparar vinnu við framtalsgerð.
Leiðbeiningar
Í köflum 1-3 hér til hliðar er farið yfir grunnatriði sem unnið er með, svo sem skattareglur og launaliði og í köflum 4-9 eru leiðbeiningar þar sem farið er yfir skráninguna sem slíka, grunnskráningu í stofni, hvernig dagpeningatöflur og bunkar eru búnir til, hvernig skrá á dagpeninga, reikna þá og tengja þá við útborgun.
Vinnsluferill