Senda launamiða í heimabanka með vefþjónustu

Ferli: Laun - Úttak - Launamiðar → Senda í heimabanka

Rétt er að benda á að ekki er gerð krafa um að senda launamiða í heimabanka lengur, þar sem launþegar hafa aðgang að sínum launamiða inn á RSK með rafrænum skilríkjum. Um leið og fyrirtæki sendir launamiða til RSK eru launamiðarnir einnig aðgengilegir þar fyrir launþegann.

Forsendur

Viðskiptavinir sem vilja nýta sér að senda launamiða í heimabanka með vefþjónustu verða að hafa samband við sinn viðskiptabanka og láta vita að þeir ætli að senda launamiða úr H3 á xml formi.

Viðskiptabankinn skráir þessar upplýsingar hjá sér og lætur Greiðsluveituna vita þannig að eftir skráningu er stílsnið launamiða notað og hægt að senda framvegis úr H3 launamiða með vefþjónustu.

Þeir viðskiptavinir sem eru hjá Arion banka þurfa að vera búnir að sækja um búnaðarskilríki og/eða starfsskilríki hjá Auðkenni, sjá http://www.skilriki.is

Íslandsbanki og Landsbankinn þar er nóg fyrir viðkomandi viðskiptavin að vera með notendanafn og lykilorð inn í bankann til þess að senda inn launamiðana.

Hvernig á að senda

Laun - Úttak - Launamiðar → Senda í heimabanka

Valið er að senda rafrænt (eða allir) undir “Sending” og þá sendist skv því sem er skilgreint í “Launamenn” fyrir “Launaseðill/Launamiði” Rafrænn.

Einnig er viðskiptabanki sem viðkomandi fyrirtæki er í viðskiptum við valinn í fellivali fyrir Banki, slegið er inn notendanafn og lykilorð inn í bankann og smellt á senda.

Þeir viðskiptavinir sem eru í Arion banka þurfa að velja “skirteini”, notendanafn og lykilorð og smella á senda.

 

Ef óskað er eftir aðstoð þá hafið samband við ráðgjafa á netfangið h3@advania.is