Skjalið er ætlað til að auðvelda vinnu launafulltrúa.
Hægt er að dreifa ábyrgð á launafærslum með því t.d. að láta millistjórnendur fylla inn í skjalið fyrir sitt fólk. Á við ef færslur koma ekki beint úr tímaskráningarkerfi. Skjalið hentar fyrir leiðréttingar á lífeyrissjóðum ef þarf að leiðrétta í einhverju magni, setja inn bónusa eða fá færslur frá t.d. starfmannafélagi ef á að draga kostnað vegna viðburða á þáttakendur. Skjalið er fyllt út og sent til launafullrúa til yfirferðar eftir útfyllingu sem breytir því með einum hnappi í textaskrá og les inn í útborgun.
Í skjalinu eru 2 síður - Dálkaskráning og línuskráning.
Dálkaskráning
Ætlað fyrir launafærslur, þar sem hver launþegi er með færslur á marga launaliði. Geta verið breytilegar launafærslur eins og yfirvinna, álag, veikindi og sumarfrí, auk frádráttarliða. Í skjalinu þarf að skilgreina launaliðina sem fara í hvern dálk og fer því oftast best á því að launafulltrúinn formi skjalið áður en hann sendir það frá sér. Ef bæta þarf við dálkum eru þeir settir aftast, ekki má inserta nýjum dálkum í mitt skjalið.
"Hreinsa" hnappurinn hreinsar allar tíma og upphæðar-færslur ef ekki er hak í "Fastur liður"
Línuskráning
Ætlað fyrir tilfallandi frádrætti eða leiðréttingar. Ef texti er settur í dálkinn skýring birtist hann á launaseðli í staðin fyrir heiti launaliðar. Hver starfsmaður getur haft margar línur ef þarf.
Ef þig vantar skjalið sendu endilega póst á netfangið h3@advania.is