Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

Version 1 Next »

Séreignarsjóðir koma uppsettir með H3 og eru allir sjóðirnir skráðir óvirkir. Það þarf því að byrja á að virkja alla þá sjóði sem eiga að vera í notkun og jafnframt að yfirfara þær upplýsingar sem eru skráðar á sjóðinn.  

Þó sjóðirnir komi uppsettir með helstu upplýsingum er það alltaf á ábyrgð launagreiðanda að yfirfara þessar upplýsingar og passa að þær séu réttar. 

Skilgreina þarf svo reiknireglur lífeyrissjóðs með því að fara í Stofn – Lífeyrissjóðir og smella á þann sjóð sem á að yfirfara. Áður en byrjað er á því þarf að velja á milli 2 aðferða. 

 

Yfirfara sérstaklega vel eftirtalda reiti í stofnupplýsingum séreignarsjóðs, einnig er gott að yfirfara bankaupplýsingar sjóðanna. 

Staða 

Breyta stöðu í Virkur í þeim sjóðum sem á að nota 

Greiðslumáti 

Val um Textaskrá SI080 eða Rafræn bankasending ef sent er beint í banka 

Til greiðslu 

Sjálfgefið er Síðasti dagur mán. Hægt að breyta dagsetningu ef önnur er notuð. 

AÐFERÐ 1 – TVEIR SJÓÐIR VIRKJAÐIR FYRIR HVERN SÉREIGNARSJÓР

Notaðir eru 2 sjóðir fyrir hvern séreignarsjóð. Annar er með númeri sjóðsins og er fyrir framlag starfsmanns, hinn er með tölunni 2 fyrir framan sjóðinn og er þá fyrir framlag launagreiðanda.  

Dæmi: 

Séreignarsjóður L004 – Hér væri þá sett upp framlag launþega

Hér þarf þá að skrá inn stuðul og yfirfara reglu

Gert með því að tvísmella á línuna og setja inn gildi í tímavídd stuðuls, prósentu (eða fasta tölu) og dagsetningu sem þetta á að gilda frá. Hér væri þá almennt settir inn 2 í stuðul.

Sjálfgefin er regla L2 Af allri vinnu en ef eitthvað annað á að gilda þarf að breyta því í þessum glugga.

Ýta á Refresh og þá á þetta að vera komið inn í Reikning lífeyrissjóðs

Fara svo yfir stofnupplýsingar og passa að virkja sjóðinn. 

Séreignarsjóður L2004 – Hér væri þá sett upp mótframlag launagreiðanda 

Allir sjóðir sem eru með 2 fyrir framan sjóðsnúmerið (4 stafa númer) koma skilgreindir með gildi í Reikning Lífeyrissjóðs, regla er L2 Af allri vinnu og Stuðull/Föst tala er 2. Þarna ætti því ekki að þurfa að gera breytingar nema ef almenn ákvæði í kjarasamningum varðandi mótframlög í séreignarsjóð breytast. Ef gera þarf breytingar er það gert eins og lýst er í dæminu með sjóð L004

  • No labels