Skírteini getur haft tengsl við þátttöku á námskeiði (Efni) þannig að skírteini stofnist og uppfærist sjálfkrafa að loknu námskeiði, hafi skírteinið verið tengt við efnið sem um ræðir.
Það er gert á skjámyndinni Fræðsla – Efni undir Tenging við skírteini:
Hægt er að tengja efni við ákveðið skírteini þannig að þegar starfsmaður hefur lokið viðkomandi námskeiði í fyrsta sinn þá stofnast tengt skírteini sjálfkrafa á starfsmanninn OG þegar starfsmaður tekur námskeiðið aftur, þá uppfærist gildistími á tengdu skírteini sjálfkrafa um sama fjölda mánaða og tilgreindur hefur verið í reitnum Gildistími.
ATHUGIÐ: Þetta gerist þó aðeins sjálfkrafa:
· Þegar hakað hefur verið við „Stofnar skírteini“ (sjá mynd hér fyrir ofan) OG
· Viðkomandi fræðsluskráning starfsmannsins hefur verið „Samþykkt“ af yfirmanni hans (sjá mynd hér fyrir neðan).
***