Ef þú ert með eftirágreidda og fyrirframgreidda launamenn og stofnupplýsingar s.s. gjöld í stéttarfélög eiga að breytast um áramót þarftu að hafa 2 útborganir.
Laun fyrir desember:
Stofna útborgun - Tegund “Áramótaútborgun”
Færsludagsetning 01.01. á nýju ári
Mánuður - síðasti mánuður yfirstandandi árs
Staðfesta fasta liði, fyrir "Eftirá" greidda launamenn
Þú stofnar útborgun fyrir janúar í næsta skrefi þegar þú ert búin að loka útborgun fyrir desember í þessu skrefi.
Laun fyrir janúar:
Stofna útborgun, ath að númer hennar sé 2021002 - Tegund “Venjuleg”
Færsludagsetning 01.01.2021
Mánuður 2021-01
Breyta stofnupplýsingum, s.s. stéttarfélögum og lífeyrissjóðum ef við á
Staðfesta fasta liði, þar sem tegundin er 0
Ef "Tímabil" í föstum liðum er ekki rétt þá fara færslurnar á ranga dagsetningu. Til þess að koma í veg fyrir þetta má fara í Stofn/Starfsmenn/Fastir liðir og bera saman tímabil og greiðslutíðni. -1 er fyrir eftirágreidda liði, 0 er fyrir það sem er fyrirframgreitt.