Stjórnun – Mannauður
Til að skrá fræðslu á marga í einu er fyrst farið í Mannauð og viðkomandi starfsmenn valdir úr listanum. Hægt er að velja einn starfsmann eða marga í einu:
- Til að velja marga starfsmenn sem eru í röð, þarf að smella fyrst á þann sem er efst í listanum, halda Shift takkanum niðri og smella svo á þann sem er neðst í listanum.
- Til að velja marga starfsmenn sem eru ekki í röð, þarf að halda Ctrl takkanum niðri á meðan smellt er á viðkomandi starfsmenn.
Næst þarf að fara í Aðgerðir og smellt á Skrá fræðslu
Þá opnast glugginn hér að neðan og viðeigandi upplýsingar eru fylltar inn. Hægt er að skrá einkunn á hvern og einn, sé þess óskað. Að lokum er smellt á Áfram.