Reiknaður starfsaldur
Starfsaldur reiknast í hverri útborgun fyrir sig eins og hann er skilgreindur í Stofn/Reiknihópar. Almennt er reiknaður 1. mánuður í starfsaldur ef starfsmaður skilar 1. mánuði í vinnu óháð starfshlutfalli þó að lágmarki í 20%.
Þessu hlutfalli má breyta ef reglurnar eru aðrar í þeim kjarasamningum sem verið er að greiða laun eftir.
Áður áunninn starfsaldur
Í mörgum tilfellum ber launagreiðanda að meta starfsaldur annars staðar frá, sá starfsaldur getur haft áhrif á t.d.veikindarétt eða röðun í launatöflu.
Til að halda utan um mismunandi starfsaldur er farið í Stofn/Starfsmenn/Uppruni viðbótarstarfsaldurs og sett inn færsla fyrir hverja tegund fyrir sig sem á að meta
Í Stofn/Starfsmenn/Viðbótarstarfsaldur er þetta skráð á starfsmenn. Hakað er við þau atriði sem á við hverju sinni.
Dæmi:
Ef hakað er í:
- "Til starfsaldurs"
- : bætist við starfsaldut í fyrirspurnum og skýrslum s.s. á launaseðli
- "Til launa": er viðbótarstarfsaldur notaður þegar gerðar eru launatöfluhækkanir vegna starfsaldurs
- "Til orlofs": er viðbótarstarfsaldurinn notaður þegar gerðar eru orlofshækkanir í launatöflum
- "Til veikinda": viðbótarstarfsaldur sést í fyrirspurnum þar sem veikindi koma fram - einnig notað til samþættinga s.s. við Vinnustund
- "Til hlunninda": viðbótarstarfsaldur er skráður til upplýsinga og sést ekki annars staðar
- "Til gjafa": viðbótarstarfsaldur er skráður til upplýsinga og sést ekki annars staðar
Í dálkinn Athugasemdir er hægt að skrá upplýsingar sem sjást ekki annars staðar.
Fyrirspurnir:
- Til að sjá starfsaldur á einstaka starfsmanni er farið í Stofn/Starfsmenn eða í Laun/Skrá tíma og laun og ferillinn kallaður fram með Crtl+G
- Til að sjá starfsaldur allra starfsmanna ferðu í Fyrirspurnir/Söfnun og réttindi og tekur út einhverja af þeim 3 fyrirspurnum sem eru í boði.