Nú er mögulegt að taka tillit til svokallaðs „Grace period“, eða endurnýjunartímabils, þegar reiknaður er nýr gildistími á skírteini starfsmanns sem tengt er efni í fræðslu. Þannig getur starfsmaður lokið fræðslu sem tengist skírteini töluvert Endurnýjunartímabil skírteina (Grace period) er afbrigði af tengingu skírteinis og fræðslu.
Þegar Endurnýjunartímabil er í gildi getur launamaður lokið fræðslu áður en skírteini rennur út, en nýr gildisdagur er enn reiknaður frá fyrri lokadegi, svo lengi sem fræðslunni var lokið innan gildistímabilsins.
Einnig mun gildistími á skírteini, þar sem skráð hefur verið endurnýjunartímabil
...
,
...
alltaf miðast við síðasta dag viðkomandi mánaðar
...
.
Til að nýta sér þessa nýju virkni þarf notandi að hafa eininguna hrmgracep
Þegar búið er að bæta hrmgracep í hlutverk notandans þá mun hann sjá Endurnýjunartímabil undir „Aðgerðir“ í Tegund skírteina. Athugið að einungis er hægt að nota þessa virkni ef tegund skírteinis er tengd efni, líkt og á myndinni hér að neðan:
...
Eftir að smellt hefur verið á Endurnýjunartímabil opnast glugginn hér að neðan, þegar búið er að velja að kveikja Endurnýjunartímabil skírteinis sést undir Tegundir Skírteina > Aðgerðir>Endurnýjunartímabil:
...
Þegar kveikt er á endurnýjunartímabili þarf að setja inn hvað það eiga að áað vera margir mánuðir (tala frá 1-99) . Talan í reitnum Fjöldi mánaða.
Fjöldi mánaða segir til um það hversu marga mánuði áður en skírteinið rennur út starfsmaðurinn hefur til að endurnýja skírteinið þannig að dagsetninginn mðist miðist við mánuðinn sem skírteinið á að renna út í.
Þegar endurnýjunartímabil er notað þá hakast sjálfkrafa í „Kveikt á endurnýjun skírteina í lok mánaðar“ þar sem sú regla er inni í endurnýjunartímabilinu. .
Þeir sem vilja geta valið að nota einungis regluna um að skírteini uppfærist alltaf í lok mánaðar án þess að nota endurnýjunartímabil.
...
Dæmi til útskýringar: Ef
Endurnýjunartímabil er 3 mánuðir áður en skírteini rennur út
...
stillt á 3 mánuði. Starfsmaður er með skírteini sem rennur út 28.02.2020
...
og gildistími skírteinisins er 12 mánuðir
Ef starfsmaður lýkur námskeiði sem tengt er skírteini stm. lýkur fræðslu 14.01.2020 þá : mun uppfært skírteini gilda til 28.02.2021 (þar sem þetta er innan Endurnýjunartímabils sem er 3 mánuðir)
Ef starfsmaður lýkur námskeiði sem tengt er skírteini stm. lýkur fræðslu: 17.09.2019 þá mun uppfært skírteini gilda til 30.09.2020 (þar sem það eru meira en 3 mánuðir áður en skírteinið rennur út þá verður dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)
Ef starfsmaður lýkur námskeiði sem tengt er skírteini stm. lýkur fræðslu: 05.03.2020 þá mun uppfært skírteini gilda til 31.3.2021 (þar sem skírteini er þegar útrunnið er nýja dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)
Info |
---|
ATHUGIÐ: Notandi þarf að hafa eininguna hrmgracep til að geta unnið með endurnýjunartímabil |