Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 7 Next »

Endurnýjunartímabil skírteina (Grace period) er afbrigði af tengingu skírteinis og fræðslu.

  • Þegar Endurnýjunartímabil er í gildi getur launamaður lokið fræðslu áður en skírteini rennur út, en nýr gildisdagur er enn reiknaður frá fyrri lokadegi, svo lengi sem fræðslunni var lokið innan gildistímabilsins.

  • Einnig mun gildistími á skírteini, þar sem skráð hefur verið endurnýjunartímabil, alltaf miðast við síðasta dag viðkomandi mánaðar.

Endurnýjunartímabil skírteinis sést undir Tegundir Skírteina > Aðgerðir>Endurnýjunartímabil:

Þegar kveikt er á endurnýjunartímabili þarf að setja inn hvað það áað vera margir mánuðir (tala frá 1-99) í reitnum Fjöldi mánaða.

Fjöldi mánaða segir til um það hversu marga mánuði áður en skírteinið rennur út starfsmaðurinn hefur til að endurnýja skírteinið þannig að dagsetninginn miðist við mánuðinn sem skírteinið á að renna út í.

Þegar endurnýjunartímabil er notað þá hakast sjálfkrafa í „Kveikt á endurnýjun skírteina í lok mánaðar“.

Þeir sem vilja geta valið að nota einungis regluna um að skírteini uppfærist alltaf í lok mánaðar án þess að nota endurnýjunartímabil.

Dæmi:

Endurnýjunartímabil er stillt á 3 mánuði. Starfsmaður er með skírteini sem rennur út 28.02.2020 og gildistími skírteinisins er 12 mánuðir

  • Ef stm. lýkur fræðslu 14.01.2020: mun uppfært skírteini gilda til 28.02.2021 (þar sem þetta er innan Endurnýjunartímabils sem er 3 mánuðir)

  • Ef stm. lýkur fræðslu: 17.09.2019 mun uppfært skírteini gilda til 30.09.2020 (þar sem það eru meira en 3 mánuðir áður en skírteinið rennur út þá verður dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)

  • Ef stm. lýkur fræðslu: 05.03.2020 mun uppfært skírteini gilda til 31.3.2021 (þar sem skírteini er þegar útrunnið er nýja dagsetningin síðasti dagur þess mánaðar þegar námskeiði var lokið)

ATHUGIÐ: Notandi þarf að hafa eininguna hrmgracep til að geta unnið með endurnýjunartímabil

  • No labels