Versions Compared
Key
- This line was added.
- This line was removed.
- Formatting was changed.
Nóvember
7687 - Laun – áramótaútborgun
Laun:
- Lagfæring á villu í Samþykktarferli áramótaútborgunar, þar sem laun fyrirframgreiddra starfsmanna fluttust ekki yfir í janúarútborgun
- Lagfæring á villu við uppfærslu áramótaútborgunar. Ef áramótaútborgun var með villu og því ekki hægt að uppfæra, reyndi kerfið að flytja samþykktir yfir í janúarútborgun sem ekki stofnaðist.
7619 - Nóvember uppfærsla
Almennt:
- Fyrirtækisheiti er nú sýnilegt vinstra megin á borða efst
- Minnismiðar í launum og stjórnun, dálkurinn "Einstaklingar" hefur bæst við listann þar sem sjá má hvaða starfsmanni viðkomandi minnismiði er tengdur - Leiðbeiningar vegna minnismiðavirkninnar (ctrl+m) má finna hér
- Umsjónarmaður kerfis getur nú sett á sig einingu sem kveikir á þeirri virkni að hann fær tilkynningar um póstsendingar sem hafa farið á villu síðustu 30 daga (eining TMFW-diagnostics)
- Í villuglugga hefur bæst hnappurinn "Afrita" sem smella má á og aftrita villutexta
Fræðsla:
- Lagfæring á uppfærslu á skírteinum sem voru stofnuð út frá efni
- Villa sem upp kom við skráningu á Fræðsluauka lagfærð
- Skrá marga á atburð - búið er að bæta dálkunum "Verk", "Staða starfs" og "Starfsheiti" við valmyndina sem má þá sía eftir
Mannauður:
- Óvirk atriði birtast ekki í starfsgreiningum
- Viðhengi - búið er að lagfæra villu sem kom upp þegar stjórnandi reyndi að rjúfa tengsl (frá öðrum notanda) á skjali
- Hægt að skoða samanburð eyðublaða (eining CompareFormEmpl)
- Nú geta stjórnendur bætt á sig einingu til að fá samanburð starfslýsinga (eining 855)
- Nú er hægt að skrá starfslýsingu á marga starfsmenn í einu
- Stjórnendur geta nú fengið einingu sem gerir þeim kleift að aflæsa eyðublaði sem hefur verið læst
Ráðningar:
- Lagfæringar á hraðsendingum í starfavöktun
- Úrvinnsla umsókna - lagfæring á villu sem upp kom ef tungumálakóði var rangur
Laun:
- Þegar unnið er í fyrirspurnum (Úttak - Fyrirspurnir) er nú mögulegt að fara beint í launamanna- eða starfsmannaspjald viðkomandi einstaklings með skipununum Alt+1 og Alt+2
- Skrá tíma og laun - þegar laun eru reiknuð birtast nú athugasemdir varðandi útreikning auk flipans "Athugasemdir" þar sem athugasemdir eru listaðar upp
- Vinnslan "Núllstilling á réttindum" sem átti það til að frjósa keyrir nú snurðulaust
- Veflyklar - reiturinn "Lykilorð", nú má velja Alt+F9 til að sjá hvað lykilorð viðkomandi móttakanda er
- Lífeyrissjóðir - reiturinn "Einkennisnúmer" leyfir nú eingöngu 3 tölustafi
- Ýmsar lagfæringar varðandi þjóðskrá
- Aðgerðin að "Senda launaseðla í vefþjónustu" leyfir núna að senda launaseðla í Íslandsbanka og Landsbankann. Leiðbeiningar má finna hér
- Launatöflur, villa sem gat komið upp þegar þrepi var bætt við lagfærð
Samþykktaferli:
- Við endurreikning eða endursamþykkt er hægt að notast við mörk +/- 15 kr án þess að það krefjist endursamþykkis
- Hægt er að stilla mörkin sem virkja endursamþykkt með sysoptions röðinni með númerið "PayconfirmDifference", þetta er dreift með gildinu 15 sem þýðir +/-15 krónur
- Tölur í gröfunum í samanburði voru ekki með aukastöfum, en er núna komið með með tvo aukastafi, dæmi var 6 millj. nú kemur 6.84 millj., eða það sem við á hverju sinni
- Launaliðir í samanburði í starfsmönnum er nú raðað eftir "Röð" skv launaliðum
- Nú er hægt að sía á hóp/deildir í samanburði
- Nú er hægt að hafa það mismunandi á milli fyrirtækja hvort samþykktir eru út frá hópum eða deildum
- Þegar hlutir eru endurstaðfestir eða deild/hóp er bætt við samþykktarferil þá sendist póstur á samþykktaraðila þessi efnis að laun eru tilbúin til endurstaðfestingar
- Það er stillt af hvort samþykktaraðilar fá tölvupósta vegna athugasemda launafulltrúa og einnig hvort launafulltrúar fái tölvupóst vegna athugasemda samþykktaraðila
- Notendur sem hafa eininguna 5008 eða 5009 og hafa réttar aðgangsstýringar, fá póst
- Póstur er aðgangsstýrður út frá raunmánuðum og hóp/deild
- Þegar það þarf að endurstaðfesta deildir/hópa þá koma þær deildir/hópar efst í listanum í „staðfesting“ í ferlinum sem launafulltrúar hafa
- Hægt er nú að sjá samtölur fyrir launamenn í samanburði þegar hópur/deild hefur verið sprengd upp
- Fyrirsagnir reitanna í samanburði eru nú frystar þegar verið er að scroll-a upp og niður í skjámynd, þannig hefur þú tengingu á milli samtalna og flokka þegar verið er að horfa á deildir/hópa/starfsmenn (ekki í uppsprengdum launamanni)
- Hægt er að senda áminningar á samþykktaraðila hópa/deilda sem eiga eftir að samþykkja
- Einnig er hægt að setja allt í endurstaðfestingu í einu í stað þess að senda eina í einu
- Búið er að breyta þannig að þegar upphæð á deild hefur breyst útfrá upphæð í byrjun ferils sem var samþykkt þá birtist textinn "Þarfnast endurstaðfestingar"
- Þegar er verið að bera saman tóma útborgun (núverandi) við eldri (samanburða) þá sýnir nú samanburðurinn prósentulækkun (100% niður)
- Upphæðir í samanburði pr. launþega birtist ekki lengur með NaN heldur núll/0
- Nú notar samþykktarferilinn póstfang launagreiðenda fyrir póstsendingar
Leiðbeiningar vegna samþykktarferils má finna hér
Ef óskað er eftir frekari aðstoð vegna samþykktarferils, þá hafið samband við ráðgjafa í netfangið h3@advania.is
Áætlanir:
- Búið að lagfæra villu sem olli því að í sumum reitum birtust villuboð ítrekað þó búið væri að smella á OK
- Gildi (ár, mánuður) vistast nú rétt, hvort sem bandstrik er slegið inn eða ekki
Verkborð:
- Betrumbætur á afmælisdagalista
- Lagfæringar á síu vegna ráðninga, þegar smellt á "Samtals" opnast eingöngu það starf sem var valið
Október
7620 - Intellecta aðlaganir
Intellecta kjarakönnun:
- Aukinn hraði í Intellecta fyrirspurn
- Endurbættur útreikningur á greiðslu fyrirtækis í séreignasjóð starfsmanns
Samþykktarferill:
- Lagfærð villa þar sem gröf í samþykktarferli sýndu launafærslur úr bunkum sem voru ekki tengdir við útborganir
7616 - Október uppfærsla
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir þessa uppfærslu
Fræðsla:
- Lagfæring á aðgerðinni „Stofna nýjan atburð og afrita þátttakanda“ þegar unnið er með þátttakendur í atburðum
Þekkingaryfirlit:
- Í þekkingaryfirlitinu er hægt að velja ör við námskeiðstitil sem opnar listann „Vinna með valda starfsmenn“. Þar er hægt að senda tölvupóst, skrá á atburð og skrá fræðslu
- Undanþága er nú sýnileg í þekkingaryfirliti
- Búið að bæta við þekkingaryfirlitið síunni „Verk“
- Nú er hægt að sía á einstaka þekkingu, efni og skírteini
- Sé starfsmaður með skráðan farsíma eða vinnunetfang sést tákn fyrir framan hann í þekkingaryfirliti; hægt er að hringja í hann eða senda póst úr þekkingaryfirlitinu.
- Nú er sýnilegt á þekkingaryfirliti og í listanum „Vinna með valda starfsmenn“ hvort starfsmaður sé skráður á námskeið; blár hringur birtist utan um punktinn í yfirlitinu
- Búið er að laga hvernig kvarði þekkingar birtist á þekkingaryfirlitinu (2/3 | 50% - hér er starfsmaður með tvo af þremur mögulegum og búinn að klára 50% af þeim námskeiðum sem krafist er og tengd eru við þekkinguna)
- Þekking birtist nú án þess að vera tengd við efni eða skírteini á þekkingaryfirliti
Áætlanir:
- Nú er aftur hægt að breyta vinnustöðu í Áætlunum án villumeldingar
- Lagfæring á síu vegna aðgerðarinnar „Hlutfallsbreyta dálki“ í skráningu launaáætlana
Laun:
- Nú er hægt að lesa skrár inn í Þjóðskrá á forminu E31
September
7603 - Septemberuppfærsla
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir þessa uppfærslu
Almennt:
- Tölvupóstsamskipti - vinnsla sem sækir villuskilaboð vinnur nú hraðar en áður sem gerir það að verkum að skemmri tíma tekur að sækja samskiptin
- Ctrl+M - lagfærð villa sem olli því að áminningar voru ekki sendar í dagatal viðkomandi auk þess sem aðgangsmál voru lagfærð þannig að notendur með takmarkaðan aðgang geti sent áminningar
- Signet, nýjum breytum "Dags. frá" og "Dags. til" má nú bæta við tölvupóstsniðmát sem upplýsa aðila um frest sem þeir hafa til að undirrita skjöl
- Signet, þegar skjöl eru send í undirritun er nú hægt að yfirskrifa netfang sem fyrir er á starfsmanni
- 50skills, einingum bætt við til að opna fyrir lífeyrissjóði, menntun, ferilskrá og aðstandendur
- Ný stilling í sysoptions sem leyfir að næsti yfirmaður komi alltaf úr "Verk" þó starfsmenn úr mismunandi deildum séu skráðir á "Verk"
- Dálkasíun í listum, þegar smellt á svörtu píluna við dálkaheitið er nú hægt að skrifa inn gildi í leit og og smella á Enter til að fá fram niðurstöður
Laun:
- Orlofshækkanir, aðgangsvilla löguð þegar smellt á Skoða breytingar undir "Keyra orlofshækkanir" í "Hækkanir"
- Skrá tíma og laun, villa löguð í dagsetningarformi (ef fyrsti partur dagsetningar var yfir 12) sem leiddi til annarrar villu þegar velja átti launaflokk
- Afturvirkar launaleiðréttingar, hægt að eyða færslum úr bunka
- Afstemming, "Með laun, ekki skattkort" allir launamenn sem vantar skattkort birtast burtséð frá því hvort vanti tegund ráðningar í starfsmannamynd
- Launamenn, búið að koma í veg fyrir að hægt sé að setja hvaða gildi sem er í reitinn "Tungumál á launaseðli", velja þarf gildi sem til eru í töflu
- Launamiðar, launamiðareitur 09 ekki lengur inni í samtalslínu á launamiða þegar "Samtölur eingöngu" eru valdar í "Birting launamiða"
- Reiknihópar, lagfærð villa sem olli því að ekki var horft í hámarks- og lágmarksupphæð þegar hlutfall reiknað
- Launaliðir - reiknistofn, við reikning er horft á reiknistofna í launaliðum, virkaði ekki í öllum tilfellum áður
- Launamenn, Starfsmenn og Skrá tíma og laun - þegar listar teknir út í Excel er búið að fjarlægja tímastimpil úr dagsetningum
- Vinnslur, lagfæring á að "Flutningur á heimadeild" tók ekki tilit til síunar starfsmanna
- Launaframtal, villa lagfærð sem olli því að upphæðir liða utan staðgreiðslu birtust tvisvar í upptalningu
- Bókhaldsskrá, þúsundapunkti bætt við og aukastafir teknir út
- Reikna uppbætur, betri villuskilaboð ef reitirnir Staða starfs eða Vinnuskylda 100% eru tómir
- Fyrirspurnir, Uppfærsluskrá - reitirnir Mánuður eru nú sjálfgefið tómir en ekki með upplýsingum sem koma útborgun ekki við - sem gat valdið því að fyrirspurnir birtust tómar
- Launatöflur, aðgerðin "Tengdir starfsmenn" birtir nú réttilega lista af starfsmönnum sem eru í viðkomandi launatöflu
- Launatöflur, löguð villa sem faldi allar færslur í "Flokkar/Þrep" þegar færslur voru uppfærðar
- Rafrænir launaseðlar, lagfæring vegna villu sem upp kom þegar númer launatöflu var langt
Jafnlaunavottun:
- Starfaflokkar, búið að bæta við reit vegna starfsmats inn í Starfaflokka
- Starfaflokkar, tvær nýjar fyrirspurnir, Starfaflokkun - starfsmenn (sameinar upplýsingar úr starfsmannamynd, launamannamynd og heildarstig starfaflokks) og Starfaflokkun - viðmið (sýnir starfaflokkunarkerfið í heild sinni)
- Starfaflokkar - breyting á viðmóti undirfærslna
Mannauður:
- Aðgangsstýringar á tegundir og flokka í Samskiptum - ath. að þau fyrirtæki sem eru að nota Samskipti í Stjórnun þurfa eftir uppfærsluna að bæta aðgangstýringum á þá stjórnendur sem eru að nota Samskipti
- Lagfæring þegar hlutum í vörslu er skilað í gegnum verkferli
- Eyðublöð, villa varðandi vistun á upplýsingum í skyldureitum löguð
Intellecta:
Hraðaaukning í skjámyndinni "Varpa launaliðum"
Ágúst
7611 - Intellecta kjarakönnun
Meginhlutir í uppfærslunni:
- Aðlaganir gerðar á Intellecta vinnslunni
7607 - Undanfari nýs uppfærslukerfis
Uppfærslukerfi:
- Uppfærslan er fyrsti áfangi í útgáfu nýs uppfærslukerfis
7605 - Teningaviðbætur
Almenn lýsing:
H3 ráðgjafar geta veitt nánari upplýsingar um þessa nýju virkni – h3@advania.is
Meginhlutir í uppfærslunni:
- H3 Teningar
- Aðlögun á launþegavídd í mannauðsteningi – bætt var við þjóðerni
- Aðlögun á öllum teningum – bætt við loggun á innlestri gagna í BI töflur fyrir teninga
- Aðlögun á öllum teningum – bætt við nýrri mælieiningu [Gögn síðast uppfærð] sem skal leysa [Teningar síðast uppfærðir] af hólmi þar sem hún verður ekki studd frá og með SQL2017
- Aðlögun á mannauðsteningi – víddin [Ráðinn-Hætti] tekin úr mannauðsteningi
- Aðlögun á jafnlaunavottunarteningi – bætt var við tveim mælieiningum til að geta skoðað viðmiðunarstig niður á starfaflokk (óháð fjölda starfsmanna í starfaflokknum)
7610 - Launaseðlar
Meginhlutir í uppfærslunni:
- Lagfæring þegar verið er að vista launaseðla sem viðhengi á launamenn
Júlí
7597, 7601 og 7602
Ath. Taka þarf allar uppfærslurnar inn í einu.
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir að uppfærslurnar eru allar teknar inn.
Almennt:
- Lagfæring á Ctrl+M varðandi tölvupóstvirkni og listauppsetningu
- Lagfæring á leit í listum í skjámyndum
Laun:
- Lagfæring á villu þegar lífeyrissjóður er valinn þegar hækka átti fastar lífeyrissjóðsgreiðslur
- Lagfæring á innlestri launataflna með fleiri en 20 þrep úr .csv skrám
- Lagfæring á uppfærslu launamanna úr þjóðskrá þegar þjóðskrárskráningar eru ekki til
- Virkir starfsmenn sjálfkrafa birtir í kjarakönnun Intellecta
- Nýjar stoðskrár settar inn vegna kjararannsóknar
- Hertar aðgangsstýringar fyrir launaseðla þegar þeir skoðaðir á skjá
Stjórnun:
- Dálkunum Starfaflokkur, Svið, ISTARF95, Menntunarflokkun og Stöðutákn ISAT 95 bætt við lista fyrir starfslýsingar starfsmanna
Ráðningar:
- Lagfæring á sendingum tölvupósta vegna starfavöktunar
- Myndvinnsla í samfélagsmiðlaflipa betrumbætt
- Heiti ráðningarbeiðni birtist nú í umsóknum og .pdf skjölum á mínum síðum á ráðningarvef
- Umsækjandi fær tækifæri til að vista umsókn þó innskráningartími sé liðinn
Fræðsla:
- Lagfæring á hraðavandamáli í stillingum fyrir þekkingaryfirlit
Signet:
- Lagfærð virkni þegar velja á fleiri en einn undirritunaraðila fyrir hönd fyrirtækis
Júní
7590 - Intellecta kjarakönnun
Laun
- Intellecta kjarakönnun er nú aðgengileg í H3. Leiðbeiningar má nálgast hér og frekari aðstoð má fá með því að hafa samband við ráðgjafa okkar í netfangið h3@advania.is.
7594, 7591 og 7598
Ath. Taka þarf allar uppfærslurnar inn í einu.
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir að uppfærslurnar eru allar teknar inn.
Almennt:
- Lagfæring á Ctrl M virkni
Kerfisumsjón:
- Valmöguleikinn ALLT er núna alltaf efstur í vali í aðgangsstýringum
Signet:
- Heiti breytt á reit í skráningarmynd
Þjóðskrá:
- Lagfæring á innlestrartegund 21
Laun:
- Endurreikningur eyðir núna út afleiddum færslum ef engar skráðar á starfsmann
- Lagfæring á launatöflu, ekki lengur hægt að afrita upphæðir á milli lína
Dagpeningar:
- Lagfæring á dagpeningum í H3+
Fræðsla:
- Lagfæring á þeirri virkni að tengja ytri þátttakendur í Fræðslu við þjóðskrá
- Óvirkir einstaklingar birtast ekki lengur í lista í Atburðum
- Lagfæring á síun lista í Fræðsluleit
- Greiningum bætt við listavirkni í Fræðsluleit
Ráðningar:
- Lagfæring á deilingu á samfélagsmiðlum
- Stöðunni „Ráðningu lokið“ bætt við á verkborði
- Bætt virkni við að afrita ráðningakerfi yfir á ytrivef
- Lagfæring á þýðingu í þjóðernislista
- Lagfæring á póstsendingum til umsækjanda ef netföng voru ranglega skráð
Maí
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir að uppfærslurnar eru allar teknar inn.
Dagpeningar í H3+:
Unnið hefur verið að því undanfarið að gera dagpeningakerfið aðgengilegt í H3+. Valmyndir hafa verið einfaldaðar til að gera kerfið aðgengilegra og þægilegra í notkun. Helstu breytingar eru að nú hefur notandinn val um hvort stofna eigi bankafærslur eða ekki.
Leiðbeiningar fyrir dagpeningana má finna hér.
Laun:
- Lagfæring á villu í greiningatening þar sem einingar sýndu ekki aukastafi
- Lagfæring á villu sem kom upp í sendingu skilagreina til RSK vegna skráar stærðar
- Lagfæring á birtingu í flippunum hlutföll og krónur í launatöflum
Apríl
7541, 7570, 7571, 7572 og 7574
Ath. Taka þarf allar uppfærslurnar inn í einu.
Ath. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir að uppfærslurnar eru allar teknar inn.
Mannauður:
- Lagfæring á stöðu eyðublaða á verkborði.
- Lagfæring á mælikvörðum á verkborði.
- Lagfæring á flutningi gagna um umsækjendur yfir í H3 Laun og Mannauð.
Fræðsla:
- Óvirkar deildir og starfsheiti birtast ekki lengur í stillingum í þekkingaryfirliti.
Ráðningar > Umsóknir:
- Upplýsingar af flipunum Yfirferð umsóknar og Ráðning afritast ekki lengur með umsóknum sem tengdar hafa verið við aðrar ráðningabeiðnir.
Signet:
- Nýr hakreitur kominn á valmynd, „Birta eftirfarandi texta við undirskrift af hálfu fyrirtækis“. Sé hakað í þennan reit, birtist sjálfgefinn texti „Undirritað f.h. [X]“ sem notandi getur eytt út og breytt að vild.
- Flettilistinn í Tegund skjals birtist nú þótt vinnunetfang starfsmanns vanti.
Laun:
- Lagfæring á forskráðum starfsheitum. Launatöflur með orlofshækkun á lífaldur virkar núna rétt.
- Lagfæring á stillingum dálka og reikningi í áætlunum.
- Lagfæring á hægagangi í flipanum Reikningur í Skrá tíma og laun.
- Lagfæring á hægagangi í birtingu launataflna.
- Lagfæring á útborgunarglugga þegar farið er á milli fyrirtækja.
- Lagfæring á Lífeyrissjóðum í H3+. Hægt að skrá nýja launaliði og reglu.
- Uppfærsla 7574 lagar villu sem gat komið upp t.d. við úttak launaseðla, bankaskráa og Kjararannsóknar þegar verið er að vinna með stór gögn
7532 - Aðlögun og breytingar á teningum
Teningar
- Aðlögun á launþegavídd í Mannauðsteningi - bætt var við heimilisföngum og netföngum
- Aðlögun á Jafnlaunavottunarteningi – texti leyfður í auðkenni þreps í undirviðmiði
- Breyting á Aðgangsteningi – notanda gert kleift að skoða alla kerfishluta H3, hlutverk, einingar, aðgangsstýringar og notendur
- Aðlögun á teningum - sviðinu „Lykill“ bætt við víddir með mörgum eiginleikum til þess að nýta virkni í Excel svo skýrslur verði hraðvirkari
7545 og 7565
Ath. Þeir sem flytja ráðningarkerfið handvirkt yfir á ytri vef þurfa að gera það eftir þessa uppfærslu.
H3 Laun
- Nú er hægt að stilla samþykktarferil launa mismunandi milli fyrirtækja, á deildir og hópa
H3 Ráðningar
- Lagfærð villa ef auglýsingar innihalda myndir
7531, 7542 og 7543
Ath. Taka þarf allar þrjár uppfærslurnar inn í einu. Þeir sem uppfæra ráðningarvef handvirkt á ytri þjón þurfa að gera það eftir að uppfærslurnar eru allar teknar inn.
Almennt:
- Hægt að lesa skrár á forminu E32 inn í Þjóðskrá
Ráðningar:
- Lagfæring á villu sem kom þegar farið var í störf í gegnum verkborðið
- Hægt að breyta netfangi í umsókn sem hefur verið handskáð
- Lagfæring á að mynd fari inn á grunnskráningu
- Lagfæring á skyndiminni (cache) á ráðningavef
- Dagsetningu umsóknar bætt við .pdf skjal þegar umsækjandi er fluttur yfir í Laun og Mannauð
Mannauður:
- Lagfæring í starfsgreiningum þegar þær voru á mörgum starfsmönnum
- Lagfæring á að hægt væri að setja ólöleg tákn í heiti viðhengis í skjalaskáp
- Hægt að flytja út/vista viðhengi starfsmanna
Laun:
- Lagfæring sem felst í því að verkþáttur verður OSG ef ekkert er skráð þegar dagpeningar eru tengdir við útborgun
- Lagfæring á villu sem gat komið upp þegar reikniregla 21 var keyrð
- Lagfæring á villu sem kom þegar launalið 9704 vantaði og uppfæra átti útborgun
- Aðvörun ef kennitala er röng þegar nýr starfsmaður er stofnaður
Mars
7418, 7493, 7533 og 7534
H3+ Lagfæringar og viðbætur
Almennt:
- Lagfæring á listum í H3+
- Kominn hnappur til að prófa póstsendingar í „Uppsetningu á póstsendingum“ í Kerfisumsjón
Laun:
- Lagfæring á villu sem kom ef nafn á launatöflu vantaði þegar launaseðlar voru teknir út
- Lagfæring á hægagangi við að flytja réttindi á heimadeild
- Lagfæring á lista í Gjaldheimtum til að koma í veg fyrir að hann frjósi þegar mikið af gögnum eru í listanum
- Hægt að hafa kommutölu í stuðli í reiknihóp
- Lagfæring á lista í Jafnlaunaskráningu
- Lagfæring á reiknihópum tengdum við reglu R7
- Lagfæring á síu í stéttarfélögum starfsmanna
- Hægt að nota forskráð atriði sem hafa verið skráð á starfsheiti við stofnun starfsmanns, það er gert í Stillir - upphafsgildi. Sjá leiðbeiningar hér
- Hægt að nota orlofshækkanir sem skráðar hafa verið í launatöflu þegar launatafla er sett á starfsmann
- Lagfæring á gjaldmiðli í endurreikningi launa
Ráðningar:
- Ef orlofshækkanir eru skráðar í launatöflu og valið er að nota „Sækja atriði sem hafa verið forskráð á starfsheiti“ í ráðningabeiðni þá spyr kerfið notandann hvort hann vilji nota það sem hefur verið forskráð.
- Hægt að endursenda pósta í Tölvupóstsamskiptum
- Lagfæring á vistun umsókna
- Hakbox komið fyrir framan umsækjendur í „Úrvinnslu umsókna“ til að hægt sé að afhaka umsækjanda sem ekki á að vinna með
- Lagfæring á villu sem kom ef „Senda gögn“ glugginn var opin þegar unnið var í „Úrvinnslu umsókna“
- Nú geta stjórnendur með takmarkaðan aðgang að stöðum umsókna aðeins skipt yfir í þær stöður sem þeir hafa aðgang að
Mannauður:
- Ekki hægt að setja óvirka tegund eyðublaða á starfsmenn
- Lagfæring á villu sem kom þegar notandi reyndi að vista forsniðið skjal í viðhengistegund sem hann hafði ekki aðgang að
- Lagfæring á lista í Starfsgreiningum til að koma í veg fyrir að hann frjósi ef hann er tengdur við marga starfsmenn
Febrúar
7526 og 7529
Laun:
- Lagfæring á skilagrein til RSK vegna skattareglu 6
- Bætt hefur verið við skattareglu 7 sem á við 25% skattafslátt til erlendra sérfræðinga, sjá nánar á vef RSK eða skoða leiðbeiningar
- Lagfæring í reiknivél ef starfsmannanúmer starfsmanns var 10 eða hærra
7525 og 7527 - H3+ lagfæring
Laun:
- Lagfæring á meðhöndlun persónuafsláttar þegar launamenn eru á 14 daga greiðslutímabili í nýju reiknivélinni
Mannauður:
- Lagfæring á að mynda forsniðin skjöl sem viðhengi beint inn í H3+
Athugið - varðandi uppfærslur 7483, 7500 og 7499
- Þeir sem afrita ekki sjálfkrafa yfir á ytri þjón þurfa að gera það eftir uppfærslurnar
- Skýrslur í H3 eru ekki lengur gerðar á vél notandans heldur á þjóninum, sem þýðir að ef ekki er búið að setja upp Crystal reports á þjóninum þarf að setja það upp, Hér má nálgast skrána sem þarf að sækja og er einföldum skrefum fylgt til að ljúka uppsetningu.
7483, 7521 og 7522 - Ný reiknivél í H3+ og lagfæringar
Kerfisumsjón:
- Hægt að setja aðgangsstýringar á hlutverk
Almennt:
- Sprettigluggi (pop-up window) birtist nú í H3+ þegar nýjar uppfærslur koma í dreifingu – setja þarf einingu í hlutverk notenda svo þetta virki. Einingin heitir: TMFW-Patchespopup
- Lagfæring á Tmscheduler til að laga óstöðuleika í skýrslum og Signet
Laun:
- Ný reiknivél virkjuð í H3+
- Bætt villuboð í nýju reikniverki
- Lagfæring á villuboðum ef innheimtunúmer vantar í launagreiðanda
- Launaseðill í pdf lagfærður
Fræðsla:
- Auka stafabilum bætt við í titli og vefslóð í Fræðsluauka
- Aðeins atburðir í stöðunni „Staðfest“ birtast þegar verið er að skrá starfsmenn á atburð í Mannauði
Mannauður:
- Ferlið þegar setja á eyðublöð á starfsmenn sem eru í fleiri en einu starfi lagfært
Ráðningar:
- Nafn á samþykki skilyrt í GDPR
7500 - H3 Ráðningar og Skilagreinar
Laun:
- Lagfærðar aðgangsvillur við að taka út skilagreinar
Ráðningar:
- Lagfæring á fellivalglugga (combo) í eyðublöðum og ráðningakerfi
- Lagfæring á að fellival geti verið skilyrt
- Lagfæring á að hægt sé að stroka út gildi í fellivali
7499 - Þjóðskrártenging á ráðningavef löguð
Ráðningar:
- Lagfæring á að póstnúmer birtist í þjóðskrártengingu á ráðningavef
Janúar
7492
Skýrslur eru aftur gerðar í H3+ en ekki á þjóni
7462, 7488 og 7490 - Nýjungar og lagfæringar í H3+
Almennt:
- Lagfæring á söguskráningu
Laun:
- Mögulegt að senda fyrirtækjalista í .pdf skjali þegar útborgun er uppfærð
- Ýmsar lagfæringar á nýja reikniverkinu
- Hægt að taka gjaldkeralista út í .pdf án þess að hafa fullan aðgang að skýrslum
- Endurbætur á veflyklum
- PWC – vörpun launaliða komin í H3+
- Lagfæring á samlagningu í skilagreinaglugga
Áætlanir:
- Villa sem upp kom þegar tæma átti dálka löguð
Stjórnun:
- Búið er að lagfæra villu sem kom í einhverjum tilfellum þegar ný starfslýsing var stofnuð eða eldri breytt
- Þegar notandi velur að læsa eyðublaði er hann nú varaður við með athugasemd þess efnis að læstum eyðublöðum er ekki hægt að aflæsa
Ráðningar:
- Ný og bætt skjámynd fyrir Úrvinnslu umsókna
- Þegar umsókn er breytt í flipanum Ráðning og nýtt starfsheiti valið, sækir kerfið nú öll skráð gildi strax, ekki þegar er vistað eins og gat valdið misskilningi
- Flipinn Úrvinnsla nú sýnilegur í Umsækjendur á skrá
Signet:
- Nú er einnig hægt að senda skjöl til undirritunar úr H3+ Laun
- Lagfæringar sem koma í veg fyrir aðgangsvillur sem stjórnendur fengu í einhverjum tilfellum
- Sameining tölvupósta sem undirritunaraðili fyrirtækis fær þegar um marga tölvupósta er að ræða: hak flutt til og texta breytt.
7484 - Lagfæring á launamiðum
Lagfærir aðgangsvillu þegar reynt er að taka út launamiða.
7255 og 7465 - Safnuppfærsla H3+
Almennt:
- Ctrl+M virkni komin í H3+
- Lagfæring á innflutningi gagna úr Excel
- Möguleiki á að senda villuboð beint með tölvupósti úr villuglugga
Laun:
- Lagfæring á villu í skilatímabilum hjá fyrirframgreiddum starfsmönnum
- Lagfærð villa í sambandi við reiknireglu á lífeyrissjóðum
- Frá og til dagsetning í föstum liðum virkjuð
- Lagfærð villa varðandi hámark í stéttarfélögum
Verkferlar:
- Póstsendingar: ábyrgðaraðili verkefnis fær eingöngu einn póst með verkefnum
- Tölvupóstsniðmát: Lagfæring á breytum og „yfirdeild“ bætist við sem breyta
- Hægt að skrá magn, verð og stærð við stofnun „hluta í vörslu“ í verkferli
- Nafn ábyrgðarmanns sést í verkefnalistum í stað kennitölu
- Minnislistar: endurbætur og viðbætur á gildum sem hægt er að sækja („Sækja gildi frá“)
- Lagfæring á stofnun eyðublaða
- Lagfæring á óvirkjun skjala
- Lagfæring á að notendur sem ekki eru starfsmenn fyrirtækis geti sinnt verkefnum í fyrirtækinu
Signet:
- Einhliða undirritun möguleg
- Undirritun þriðja aðila, svo sem forráðamanna, möguleg
- Hægt að senda mörg skjöl í undirritun með einni aðgerð (sama skjal og sami undirritunaraðili fyrirtækis)
- Ítrekunarpóstar; ítrekanir sýnilegar í sögutöflu, tölvupóstsniðmát ítrekunarpósta í boði, hægt að senda endurtekna ítrekunarpósta.
Ráðningar:
- Óvirkir notendur sjást ekki í Aðgangsheimildir umsókna
- Stuðningur við innri ráðningar; ráðningarbeiðni birtist ekki á ráðningarvef en hægt að afrita slóð innri ráðningabeiðni og setja t.d. á innri vef
- Netföng starfsmanna birtast í fellilista við reitinn „Til“ þegar umsóknir sendar áfram á þriðja aðila
- Hægt að ráða röðuninni í „Nærtæk skjöl tengd umsækjanda“
Mannauður:
- Lagfæring á stærð eyðublaða í mannauði
- Lagfæring á vistun eyðublaða