Forskráðar upplýsingar á starfsheiti
Hægt er að forskrá upplýsingar á starfsheiti sem skila sér svo inn í grunnupplýsingar starfsmanns. Þetta getur nýst vel t.d. þegar verið er að ráða inn marga sumarstarfsmenn með sömu grunnupplýsingum.
Ef upplýsingar úr starfsheiti eiga að skila sér í grunnupplýsingar starfsmanns þarf fyrst að fara í Stofn – Stillir og velja þar Hlaun – upphafsgildi og setja Já í Nota upplýsingar sem eru forskráðar á starfsheiti og smella á Skrá gildi.
Nýir starfsmenn/nýtt starf.
Fara inn í Stofn – Starfsheiti og setja inn þær skráningar sem eiga að tilheyra viðeigandi starfsheiti.
Þær skráningar úr starfsheiti sem skila sér út í grunnupplýsingar starfsmanns eru eftirfarandi:
- Starfsstétt
- Flokkur starfsheita
- Launatafla
- Launaflokkur
- Þrep
- Lífeyrissjóður (Almennur)
- Stéttarfélag
- Deilitala/Orlofstímar
- Orlofsprósenta DV
- Orlofsprósenta ÖN
- Reiknað orlof
- Vinnuskylda 100%
- Starfaflokkur
- Kjararannsókn
- Starfafl.ISTARF95
- Stöðutákn ISAT 95
- Menntunarflokkun
Það stofnast einungis almennur lífeyrissjóður með reglunni L6 Samkvæmt lífeyrissjóði.
Tilfærsla í starfi
Fara inn í Stofn – Starfsheiti og setja inn þær skráningar sem eiga að tilheyra viðeigandi starfsheiti.
Þær skráningar úr starfsheiti sem skila sér út í grunnupplýsingar starfsmanns eru eftirfarandi:
- Starfsstétt
- Flokkur starfsheita
- Launatafla
- Launaflokkur
- Þrep
- Deilitala/Orlofstímar
- Orlofsprósenta DV
- Orlofsprósenta ÖN
- Reiknað orlof
- Vinnuskylda 100%
- Starfaflokkur
Þegar starfsmaður er stofnaður og viðeigandi starfsheitanúmer slegið inn þá spyr kerfið hvort nota eigi þær upplýsingar sem skráðar eru á starfsheitið. Ef ætlunin er að nota þær þá er smellt á Yes og þá eiga allar þessar forskráðu upplýsingar að koma inn í gögn starfsmannsins.
Athuga að ef starfsheiti er breytt hjá starfsmanni sem er nú þegar með allar grunnupplýsingar skráðar þá þarf að passa vel að ef smellt er á Yes þá yfirskrifar aðgerðin þær upplýsingar sem fyrir voru á starfsmanninum.
Til upplýsinga ef skráðar eru upplýsingar í Launatöflu í Vinnuskylda 100% og skráðar forsendur í Orlofsflokkahækkanir þá kemur kerfið með aðra spurningu - ef þá er valið Yes yfirskrifar það forsendur úr starfsheiti, ef valið er No þá helst óbreytt skráð gildi samkvæmt forskráðum gildum í starfsheiti.