Í Bakverði er skráð inn "upphafsstaða" Orlofs í upphafi hvers Orlofsárs. Sett er inn stöðufærsla þeirra Orlofstíma sem að starfsmaður á uppsafnaða.
Inni á starfsspjaldi manns er hnappurinn "Tímabankar" hann birtir Tímabanka þá sem í boði eru og má skrá núja stöðu t.d. Orlofs þar á viðkomandi starfmann.
Stillingar, kerfisaðgerðir, Tímabankar.
Endurúthlutun: Upplýsingar varðandi endurúthltun er að finna undir flipanum Endurúthlutun
Innlestur:
Hægt er að lesa inn nýja "upphafsstöðu" starfsmanna úr textaskrá, ef upplýsingar um Orlofsstöðu eru teknar t.d út úr launakerfi.
Undir flipanum Innlestur er að finna upplýsingar um þá aðgerð og snið textaskrár.
Þar sem Bakvörður reiknar ekki ávinnslu orlofs þarf að skrá stöðu orlofs starfsmanna s.s. við upphaf orlofsárs.
Hægt er að velja um tvær leiðir til að skrá nýja orlofsstöðu á fjölda starfsmanna:
Endurúthlutun
Innlestur
Endurúthlutun
Endurúthlutun hentar þegar bæta á við tímum í tímabanka - og til er staða í tímabanka sem taka á tillit til.
Endurúthlutun er undir Stillingar>Kerfisaðgerðir>Timabankar. Þar er tímabanki orlofs (OR) valinn - og síðan flipinn Endurúthlutun.
Í skjámyndinni sést núverandi staða starfsmannsins - þegar bætt er við tímum í reitnum Ný úthlutun verður til ný staða tímabankans.
Haka þarf við þá starfsmenn sem breyta á úthlutun fyrir og síðan smellt á hnappinn Geyma.
...
Innlestur
Ný orlofsstaða frá valinni dagsetningu. Notaðu "Lesa inn stöðu sem úthlutun" við það verður til ný upphafsstaða OR á dagsetningu þeirri sem skilgreind er í skjalinu.
Undir Stillingar > Kerfisaðgerðir veldu Tímabankar
Veldu flipann Innlestur
Útbúðu Excel skjal skv. lýsingu (útbúa þarf 1 Dálk fyrir hvern lið (Kt eða starfsm.númer,Dagsetning,Ástæða,Tímafjöldi)
Afritaðu línur í skjalinu og "límdu" inn í textasvæðið
Smelltu einu sinni "utan" textasvæðis með músinni.
Info |
---|
ATHUGAÐU: þegar lesin er inn ný staða tímabanka:
|