Fjöldaskráning orlofs

Þar sem Bakvörður reiknar ekki ávinnslu orlofs þarf að skrá stöðu orlofs starfsmanna s.s. við upphaf orlofsárs. 

Hægt er að velja um tvær leiðir til að skrá nýja orlofsstöðu á fjölda starfsmanna: 

  1. Endurúthlutun

  2. Innlestur

Endurúthlutun

Endurúthlutun hentar þegar bæta á við tímum í tímabanka - og til er staða í tímabanka sem taka á tillit til.

  • Endurúthlutun er undir Stillingar>Kerfisaðgerðir>Timabankar. Þar er tímabanki orlofs (OR) valinn - og síðan flipinn Endurúthlutun.

  • Í skjámyndinni sést núverandi staða starfsmannsins - þegar bætt er við tímum í reitnum Ný úthlutun verður til ný staða tímabankans.

  • Haka þarf við þá starfsmenn sem breyta á úthlutun fyrir og síðan smellt á hnappinn Geyma.

Innlestur

Ný orlofsstaða frá valinni dagsetningu. Notaðu "Lesa inn stöðu sem úthlutun" við það verður til ný upphafsstaða OR á dagsetningu þeirri sem skilgreind er í skjalinu.

  1. Undir Stillingar > Kerfisaðgerðir veldu Tímabankar

  2. Veldu flipann Innlestur

  3. Útbúðu Excel skjal skv. lýsingu (útbúa þarf 1 Dálk fyrir hvern lið  (Kt eða starfsm.númer,Dagsetning,Ástæða,Tímafjöldi)

  4. Afritaðu línur í skjalinu og "límdu" inn í textasvæðið

  5. Smelltu einu sinni "utan" textasvæðis með músinni.

 

ATHUGAÐU: þegar lesin er inn ný staða tímabanka:

  • Gildir staðan frá og með þeirri dagsetningu sem sett er. Sé t.d. staða sett sem 30 tímar frá 1.5.2022 - og síðan skráð úttekið orlof 20.4.2022 þá dregst sú staða ekki frá stöðunni sem tekur gildi frá og með 1.5.2022.

  • Þegar ný staða er skráð bætast ekki við eða dragast frá tímar vegna fyrri stöðu tímabankans