Almennt:
Það er hægt að setja upp fyrirspurnir í greiningartening og vista uppsetninguna. Gögnin í fyrirspurninni endurnýjast eftir þeim útborgunum/mánuðum sem eru valin hverju sinni.
Dæmi:
Hérna ætlum við að skoða hvernig við setjum upp fyrirspurn til að skoða staðgreiðslu og persónuafslátt í útborgun áður en uppfært er.
1. Keyrum upp teninginn í þeirri útborgun sem við ætlum að skoða, við veljum teninginn "Heildarfærslur" vegna þess að við erum að skoða frádráttarliði.
2. Smellum á „Summary settings“ efst í vinstra horninu.
3. Höfum einungis hak við „Samtals“
4. Drögum starfsmann og launalið niður.
5. Smellum á merkið fyrir framan launaliður og afmerkjum allt nema launaliði fyrir staðgreiðslu
6. Fara í „Aðgerðir“ neðst í vinstra horninu og smella á „Vista nýja uppsetningu“
7. Ef þú vilt að aðrir hafi aðgang að þessari fyrirspurn ferðu aftur í „Aðgerðir“ og smellir á „Sýnileg öllum“
8. Næst þegar þú vilt skoða fyrirspurnina opnar þú teninginn, ferð í Aðgerðir/Opna uppsetningu/Skoða persónuafslátt. Þá opnast fyrirspurnin með nýjum gögnum.
Hugsanlega vilt þú sjá stofn til staðgreiðslu í þessari fyrirspurn. Þá velur þú alla launaliði sem mynda stofninn, býrð til möppu utan um þá og dregur þá yfir, ekki gleyma að iðgjald starfsmanns í lífeyrissjóð er dregið frá skattskyldum launum áður en staðgreiðslan er reiknuð og því þarf að taka þá launaliði með.