H3 Greiningarteningar og fyrirspurnir


Í H3 eru nokkrir staðlaðir teningar sem gott er að nota til að fylgjast með framvindu launaútborgunar, stöðu veikinda, réttindaskuldbindingu og fleiru.


Fjöldi launamanna / Fjöldi starfmanna

Fjöldi launamanna – þarna er talning á launamönnum í mánuði og í útborgun

Fjöldi starfsmanna - talning á störfum, einn launamaður getur verið í mörgum störfum hjá fyrirtæki.

Ef launmaður/starfsmaður á einhverja færslu kemur hann inn, óháð því hvers konar færsla það er þannig að ef þið eruð að leiðrétta t.d. orlof, núllstilla uppbætur eða eitthvað slíkt geta komið inn fjöldi hættra starfsmanna og best því að sleppa slíkum útborgunum úr menginu.


Heildarfærslur

Dregur öll gögn úr Skrá tíma og laun upp í teninginn miðað við frá og til skilyrðin sem valin eru.  Launakostnaður, Frádráttur og Söfnun eru tekin upp í teninginn.  Notandinn hefur möguleika á að skoða allar færslur sem settar voru inn í skráningu og reiknaðar færslur.  Þetta er ein öflugasta fyrirspurnin í kerfinu, með henni er hægt að tryggja að allar tegundir af upplýsingagjöf verði mun auðveldari en áður.  Bæði launafulltrúar, stjórnendur og eftirlitsaðilar eiga mjög auðvelt með að skoða gögnin og tryggja að ekkert sleppi í gegnum afstemmingar á útborgunum áður en uppfært er.

Heildarlaunakostnaður

Eini munurinn á Heildarlaunakostnaði og Heildarfærslum er að eingöngu kostnaðarfærslur koma upp í þessari fyrirspurn.  Búið er að hreinsa út Frádráttar- og Söfnunarliði.

Réttindastaða

Þegar starfsmenn eru látnir safna réttindum s.s. Orlofi, Vetrarorlofi, Desemberuppbót, Orlofsuppbót o.fl. er eftir hvern mánuð fundið út hver skuldbindingin á bak við þessi réttindi er með því að keyra sjálfvirka vinnslu sem reiknar réttindin yfir í krónur með launatengdum gjöldum.  Í Réttindastaða er hægt að skoða allar þessar krónur frá hinum ýmsu sjónarhornum.  Þegar búið er að bóka réttindin í bókhald vakna oft upp spurningar hjá stjórnendum hvernig þessar tölur voru fundnar út og ýmsir rengja upplýsingarnar í bókhaldinu, með fyrirspurninni er hægt að skoða þessi mál nákvæmlega og sanna útreikning á öllum réttindum.

Réttindi starfsmanns

Sýnir safnfærslulaunaliði sem þarf að gera upp við starfslok, sundurliðar Réttur/Áunnið

Stöðugildi stéttarfélaga

Einfaldur teningur sem sýnir stöðugildi niður á stéttarfélög og sundurgreinir fjölda kvenna og karla


Þegar búið er opna tening kemur sambærileg skjámynd upp á skjáinn og sést hér til hliðar.

Í efstu línu eru öll atriði sem hægt er að nota til að greina upplýsingarnar og hægt að nálgast bæði sem dálka og línur.  Lengst til hægri í línunni má sjá ör  en með því að smella á hana er hægt að fletta eina síðu í einu á milli atriða sem hægt er að velja.  Sé búið að ýta einu sinni á hægri kemur ör vinstra megin sem hægt er að nota til að fara til baka.  Athugið að örin fer eina síðu við hvern smell en ekki eitt atriði í einu.


Í hverju atriði má sjá tákn  sem gefur til kynna að hægt er að fara í undirvalmöguleika.  Þegar ýtt er á táknið kemur upp mynd sem sést hér að neðan.

Í þessari mynd er hægt að takmarka gögnin vilji ég t.d. bara sjá deild númer 0070 get ég tekið út hökin í öllum hinum og eru þá bara upplýsingarum um 0070 sýnileg.  Hægt er að raða gögnum upp.  Draga saman í Groups, búa til Groups og raða saman mismunandi forsendum.  Þrátt fyrir að við veljum út gögn þurfum við ekki að setja atriðið í dálka eða línur.  Hægt er að velja alla reiti með einum takka, hreinsa alla út og snúa við valmöguleikum.  Einnig er hægt að leita að gildi.

Sé búið að breyta valmöguleikum eitthvað breytist liturinn á merkingu og verður hann svona

Sé atriðið dregið niður á dálka eða línur kemur annar litur sem táknar að búið er að takmarka gögnin, hann er svona. 

Uppi í horninu vinstra megin fyrir neðan valatriðin má líka sjá tákn .  Í fremra tákninu, þessu með stækkunargleri er hægt að velja atriði á dálka og línur en almennt er best að draga atriðin niður og er þetta því lítið notað.  Hitt táknið er stillingar á mismunandi sýnum á upphæðum.