Skip to end of metadata
Go to start of metadata

You are viewing an old version of this page. View the current version.

Compare with Current View Page History

« Previous Version 3 Next »

Almennir lífeyrissjóðir koma uppsettir með H3 og eru allir sjóðirnir skráðir óvirkir. Það þarf því að byrja á að virkja alla almennu sjóðina sem eiga að vera í notkun hjá fyrirtækinu. Farið í Stofn - Lífeyrissjóðir og smellið á þá sjóði sem á að yfirfara og farið yfir skráðar upplýsingar.

Skilgreina þarf svo reiknireglur lífeyrissjóðanna. Búið er að setja upp reiknireglur fyrir flesta almenna sjóði (fyrir utan LSR og Brú lífeyrissjóð) en það er alltaf á ábyrgð launagreiðanda að yfirfara þessar upplýsingar fyrir alla sjóði sem á að nota og passa að allar reiknireglur séu réttar. 

Flestir almennir sjóðir koma með þessari uppsetningu í reikningi lífeyrissjóðs, stuðullinn er þá sú prósenta sem á að greiða 

Allar reglur sem koma uppsettar á launaliðunum miðast við að reiknað sé af allri vinnu.

Ef það þarf að breyta upplýsingum á einhverja launaliði eins og t.d. reiknireglu eða stuðli þá er það gert með því að tvísmella á viðkomandi línu og þá er hægt að gera breytingar í glugganum sem kemur upp og vista. Hér er þá bæði hægt að lagfæra ef stofnupplýsingar eru rangar með því að yfirskrifa töluna sem er í tímavíddinni. Einnig er hægt að skrá í nýja línu með því að smella á plúsinn og setja inn nýjan stuðul og setja þá inn frá hvaða dagsetningu viðkomandi stuðull á að gilda. 

  • No labels