Stjórnun – Mannauður
Til að senda tölvupóst á starfsmenn er fyrst farið í Mannauður og viðkomandi starfsmenn valdir úr listanum. Hægt er að velja einn starfsmann eða marga í einu:
- Til að velja marga starfsmenn sem eru í röð þarf að smella fyrst á þann sem er efst í listanum, halda Shift takkanum niðri og smella svo á þann sem er neðst í listanum.
- Til að velja marga starfsmenn sem eru ekki í röð þarf að halda Ctrl takkanum niðri á meðan smellt er á viðkomandi starfsmenn.
Næst er smellt á Senda tölvupóst undir Aðgerðir
Þá opnast glugginn hér að neðan. Velja þarf tölvupóstsniðmátið sem á að nota úr fellilista. Hægt er að breyta textanum að vild. Undir Viðtakendur má sjá þá starfsmenn sem valdir hafa verið og munu fá póstinn sendan.