Athugið að eftir að uppfærslan hefur verið tekin inn verður uppfærslukerfið einungis aðgengilegt í H3+
Atvikanúmer | Ferli | Lýsing á virkni | Kerfishluti | Stillingar / leiðbeiningar |
---|---|---|---|---|
Uppfærslukerfi H3 | Unnið hefur verið að nýju uppfærslukerfi í H3+. Eftir að uppfærslan hefur verið tekin inn er uppfærslukerfið einungis aðgengilegt í H3+ og gamla kerfið því ekki lengur virkt í Windows client.
Nýir notendur: Til að byrja að nota nýja uppfærslukerfið þarf að setja eininguna TMFW-Patch á hlutverk eða setja hlutverkið Uppfærslukerfi - H3+ á notandann. Undir Kerfisumsjón er nú sýnilegur hnappurinn Uppfærslur og undir honum má einnig nálgast allar uppfærslulýsingar. Þegar smellt er á hnappinn birtast þær uppfærslur sem á eftir að taka inn. Þá er einfaldlega hakað við viðkomandi útgáfu og smellt á Uppfæra. Hægt er að taka inn fleiri en eina uppfærslu í einu en þær þarf að taka inn í tímaröð, þ.e. elstu útgáfurnar fyrst. Uppfærslulýsingar má sjá þegar smellt er á örina undir Uppfærslur: Hægt er að fylgjast með framvindu uppfærslunnar í Athugasemdir og í lokin birtist staðfesting á því að uppfærslunni sé lokið. Athugið að til að fá inn nýjungar og lagfæringar þarf að endurræsa kerfið. Ef upp koma vandkvæði þá vinsamlegast hafið samband við ráðgjafa í h3@advania.is | KERFISUMSJÓN |
|