Runuskráning

Runuskráning gefur möguleika á að stofna margar skráningar í einu. Þannig er t.d. hægt að skrá með einni aðgerð ef starfsmaður hefur verið veikur eða í orlofi.

Þegar smellt er á geyma er gott að fylgjast með og sjá tilkynninguna þegar færslurnar hafa verið stofnaðar. Þegar sú tilkynning hefur komið upp má velja "loka glugga", því ef smellt er aftur á geyma, verða færslurnar aftur til og tvöföldun getur átt sér stað.