Læsa tímaskráningum
Hægt er að “loka” á sjálfvirkan útreikning kerfisins og “læsa færslum” t.d. með því að slá inn ákv. tímafjölda í Taxtareit.
Við það birtist “hengilás” hægramegin við viðkomandi færslu, og kerfið reiknar ekki sjálfvirkt út úr færslunni.
ATHUGIÐ: ef mikið er um læstar tímaskráningar fyrir starfsmenn á sömu reglu er það vísbending um að breyta gæti þurft reglunni til að ná inn virkni sem gerð er með því að læsa færslum