Áður en þú byrjar skaltu tryggja að búið sé að setja inn allar kerfisuppfærslur.
Laun / Mánuðir
Það þarf að stofna janúar á nýju ári
Laun / Útborganir
Þegar útborgunin er stofnuð þarf að merkja hana sérstaklega svo að launakerfið viti að um áramót sé að ræða.
Í Laun/Útborganir undir “Tegund” er valin “Áramótaútborgun” .
Færsludagurinn er settur 01.01.á nýju ári.
Útborgunardagurinn skiptir ekki máli varðandi vinnsluna sjálfa þannig að þar setjum við greiðsludag launa.
Setjum mánuði á útborgun eins og vanalega:
Ef allir launamenn eru á eftirágreiddum launum:
Desember mánuð yfirstandandi árs
Ef allir launamenn eru á fyrirframgreiddum launum:
Janúar mánuð næsta árs
Bæði fyrirfram og eftirágreiddir:
Desember mánuð yfirstandandi árs og Janúar mánuð næsta árs